„Ennþá svolítið hugsi þrátt fyrir álit Persónuverndar“

Forstjóri Vinnumálastofnunar er efins um að birta eigi lista yfir þau fyrirtæki sem hafa nýtt sér hlutabótaleiðina – sérstaklega í sambandi við smáu fyrirtækin. Listinn verður birtur í næstu viku.

Unnur Sverrisdóttir
Unnur Sverrisdóttir
Auglýsing

Unnur Sverr­is­dótt­ir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­un­ar, sagði á dag­legum blaða­manna­fundi almanna­varna í dag að listi yfir þau fyr­ir­tæki sem nýtt hafa sér hluta­bóta­leið stjórn­valda yrði birt­ur. List­inn væri þó ekki enn til­bú­inn.

„Þetta tölvu­kerfi var ekki hannað til þess að taka út lista yfir fyr­ir­tækin eða greið­end­ur. Það þarf heil­mikla handa­vinnu til. Þessu tölvu­kerfi var „riggað upp“ á met­tíma, fyrst og fremst til þess að taka við umsóknum frá ein­stak­lingum og greiða þeim. [...] Fyr­ir­tækin voru í raun í auka­hlut­verki,“ sagði hún.

Hún sagði að í þessum töl­uðu orðum væri verið að skoða með hvaða hætti Vinnu­mála­stofnun næði þessum upp­lýs­ingum úr kerf­inu þannig að hægt væri að setja þær í birt­ing­ar­hæfan bún­ing.

Auglýsing

Unnur lýsti sinni per­sónu­legu skoðun á mál­inu á fund­inum í dag. „Ég er ennþá svo­lítið hugsi þrátt fyrir álit Per­sónu­verndar – og hef stuðn­ing per­sónu­vernd­ar­full­trúa stofn­un­ar­innar í því – hvort að það sé rétt að birta lista yfir fyr­ir­tæki, til dæmis með fimm starfs­menn eða færri. Og þá er ég nátt­úru­lega að hugsa um það traust sem ég tel að þurfi að ríkja á milli okkar og skjól­stæð­inga okk­ar.“

Hún sagði að það hefði verið heil­agt hjá Vinnu­mála­stofnun að það myndi aldrei fara út fyrir veggi stofn­un­ar­innar hverjir væru að leita til þeirra.

Unnar nefndi einnig frum­varp sem kynnt var á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun þar sem sett yrði í lög leyfi til að birta þessar upp­lýs­ing­ar. Henni finnst að bíða ætti eftir þeim lög­um.

„En það verður að minnsta kosti – svo því sé til haga haldið – ekk­ert að frétta af þessu um þessa helgi og varla fyrr en ein­hvern tím­ann um miðja næstu viku. Við þurfum aðeins að skoða þetta og hafa sann­fær­ingu fyrir því að list­inn sé réttur og að hann sé birtur með þeim hætti sem við sættum okkur við.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent