„Sumargjafir eru góður og þjóðlegur siður – að gefa börnunum sínum sumargjafir – en sumargjafir eigenda Samherja til barnanna sinna eru kannski í stærri kantinum. Þær nema tugum milljarða króna í tilfærslu frá eigendum Samherja til afkomenda sinna og þetta endurspeglar stórgallað kvótakerfi með óheftu framsali og samþjöppun til stórra fjármagnseigenda.“
Þetta sagði Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, undir dagskrárliðnum störf þingsins á Alþingi í dag.
Fjármagnseigendur í stórum útgerðarfélögum í engum tengslum við hagsmuni þjóðarinnar
„Fjármagnið stýrir að stórum hluta hverjir nýta sjávarauðlindina og hvar hún er nýtt og hvar arðurinn á auðlindinni lendir. Það hefur orðið gífurleg samþjöppun í greininni á þessum þrjátíu árum sem óhefta framsalið var sett á og fjármagnseigendur hlutabréfa í stórum útgerðarfélögum eru í engum tengslum við hagsmuni þjóðarinnar eða íbúa sjávarbyggðanna sem hafa margoft þurft að blæða fyrir þegar lifibrauð þeirra og afkoma fer á einni nóttu.“
Hún sagði að þetta gæti varla kallast ásættanlegt við stjórn á sameiginlegu auðlind Íslendinga.
Gallarnir komið í ljós
Lilja Rafney sagði enn fremur að þegar óhefta framsalið hefði verið sett á árið 1990 með lögum þá hefði það verið gert með hagræðingarkröfu að leiðarljósi – að lögmál markaðarins myndu auka hagkvæmi veiðanna. „En frá þeim tíma hafa allir þessir gallar komið í ljós og komið í veg fyrir eðlilega þróun í sjávarbyggðum landsins. Græðgi, brask og miklir fjármunir hafa runnið frá greininni í óskylda starfsemi.“
Þingmaðurinn benti á að hægt væri að stýra auðlindinni með öðrum hætti með nýtingarsamningum, endurúthlutun og að koma auðlindaákvæði í stjórnarskrá. „Það verður að koma í veg fyrir að svona miklir fjármunir af sameiginlegum auðlindum okkar renni á milli kynslóða sem byggjast á sameign þjóðarinnar.“