Hjónin Ingibjörg Pálmadóttir og Jón Ásgeir Jóhannesson telja að málsókn fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækisins Sýnar á hendur sér, þar sem þau eru krafin um háa greiðslu vegna brots á kaupsamningi sem gerður var árið 2017, hafi skaðað þau „hughrif að stefnendur séu aðilar sem standi ekki við gerða samninga og skuldi háar fjárhæðir þegar fyrir liggur að orðspor er þeim einkar mikilvægt í viðskiptum frá degi til dags.“
Þau segja að málatilbúnaðurinn hafi valdið þeim miklum óþægindum, meðal annars í samskiptum við fjármálastofnanir, og viðbúið sé að svo verði áfram eftir því sem málið komst í kastljós fjölmiðla. Ábatasöm viðskipti þeirra á erlendum vettvangi séu nú þegar í uppnámi vegna málsóknarinnar.
Enn fremur telja þau að að markmið Sýnar með því að stefna sér sé að „breiða yfir afleitan rekstur Sýnar frá því að félagið tók við eignum 365 á ljósvaka- og fjarskiptamarkaði.“
Þetta kemur fram í stefnu þeirra á hendur Sýn, Heiðari Guðjónssyni forstjóra félagsins og stjórnarmönnum Sýnar sem Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins um efnahagsmál og viðskipti, fjallar um í dag.
Alls krefja þau Ingibjörg og Jón Ásgeir, og félag þeirra 365 ehf., ofangreinda aðila um þrjá milljarða króna í bætur vegna málsóknarinnar.
Kveðið á um samkeppnisbann
Forsaga málsins er sú að Sýn keypti hluta af fjölmiðlaveldi 365 á árinu 2017 fyrir alls 7,9 milljarða króna. Um var að ræða alla ljósvakamiðlar félagsins og fréttavefinn Vísi.is. Eftir í 365 stóð Fréttablaðið og tengdir miðlar sem voru svo seldir til nýrra eigenda í fyrra og eru nú reknir í félaginu Torgi ehf.
Rekstur fjölmiðla Sýnar hafa ekki gengið vel frá því að kaupin áttu sér stað. Í byrjun árs lækkaði félagið til að mynda viðskiptavild vegna fjölmiðlanna sem keyptir voru um 2,5 milljarða króna.
Tekjur Sýnar af fjölmiðlarekstri drógust saman um 446 milljónir króna milli áranna 2018 og 2019 og á fyrsta ársfjórðungi yfirstandandi árs drógust tekjur félagsins vegna fjölmiðlahluta rekstursins saman um 229 milljónir króna frá sama ársfjórðungi í fyrra.
Stefnt út af hlaðvarpi og Hringbraut
Sýn ákvað að stefna hjónunum og 365 vegna þess að stjórnendur Sýnar telja að tenging vefmiðilsins frettabladid.is við ljósvakamiðla, bæði útvarp og sjónvarp, sé með öllu óheimil samkvæmt kaupsamningnum frá árinu 2017. Miðillinn haldi úti hlaðvarpi, vísi á vef sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar (líka í eigu Torgs) af forsíðu sinni og sýni ýmis konar myndbönd, sem teljist ljósvakaefni. Vegna þessa hefur Sýn farið fram á að hinir stefndu greiði sér fimm milljónir króna fyrir hvern dag sem liðinn er frá samningsbroti. Í lok fyrsta ársfjórðungs stóð sú tala í 1,7 milljarði króna. Í dag er hún nær tveimur milljörðum króna.
Í gagnstefnu Ingibjargar og Jóns Ásgeirs, sem Markaðurinn fjallar um í dag, er þessu með öllu hafnað. Fyrir því eru tvö meginrök. Í fyrsta lagið seldi 365 eftirstandandi miðla sína, sem að uppistöðu var Fréttablaðið og vefur þess, til Helga Magnússonar fjárfestis og samstarfsmanna hans í fyrra í tveimur skrefum. Þegar það síðara var stigið, í október, var sjónvarpsstöðinni Hringbraut og tengdri síðu rennt inn í Torg, útgáfufélag Fréttablaðsins. Þá þegar hafði Fréttablaðið hafið framleiðslu og birtingu á hlaðvarpi á frettabladid.is.
Hjónin hafna því að umrædd hlaðvarpsgerð sé samkeppni við þá ljósvakamiðla sem seldir hafi verið til Sýnar. Auk þess segjast þau ekki bera ábyrgð á sjónvarpsrekstri Hringbrautar, enda hafi þau verið búin að selja fjölmiðlanna þegar honum var rent inn í útgáfufélag Fréttablaðsins. Það hafi ekki verið staf krókur um það í kaupsamningnum að þau hafi verið skuldbundin til þess að sjá til þess að óskyldur þriðji aðili yrði bundinn af samkeppnisbanninu.