Ingibjörg og Jón Ásgeir vilja milljarða í bætur vegna skaða á orðspori sínu

Eigendur 365, sem seldu ljósvakamiðla félagsins til Sýnar á um átta milljarða árið 2017, segja að stefna Sýnar á hendur sér hafi „skapað þau „hughrif að stefnendur séu aðilar sem standi ekki við gerða samninga.“ Þau vilja þrjá milljarða króna í bætur.

Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Ásgeir Jóhannesson
Auglýsing

Hjónin Ingi­björg Pálma­dóttir og Jón Ásgeir Jóhann­es­son telja að mál­sókn fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Sýnar á hendur sér, þar sem þau eru krafin um háa greiðslu vegna brots á kaup­samn­ingi sem gerður var árið 2017, hafi skaðað þau „hug­hrif að stefn­endur séu aðilar sem standi ekki við gerða samn­inga og skuldi háar fjár­hæðir þegar fyrir liggur að orð­spor er þeim einkar mik­il­vægt í við­skiptum frá degi til dags.“ 

Þau segja að mála­til­bún­að­ur­inn hafi valdið þeim miklum óþæg­ind­um, meðal ann­ars í sam­skiptum við fjár­mála­stofn­an­ir, og við­búið sé að svo verði áfram eftir því sem málið komst í kast­ljós fjöl­miðla. Ábata­söm við­skipti þeirra á erlendum vett­vangi séu nú þegar í upp­námi vegna mál­sókn­ar­inn­ar. 

Enn fremur telja þau að að mark­mið Sýnar með því að stefna sér sé að „breiða yfir afleitan rekstur Sýnar frá því að félagið tók við eignum 365 á ljós­vaka- og fjar­skipta­mark­að­i.“

Þetta kemur fram í stefnu þeirra á hendur Sýn, Heið­ari Guð­jóns­syni for­stjóra félags­ins og stjórn­ar­mönnum Sýnar sem Mark­að­ur­inn, fylgi­rit Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, fjallar um í dag. 

Alls krefja þau Ingi­björg og Jón Ásgeir, og félag þeirra 365 ehf., ofan­greinda aðila um þrjá millj­arða króna í bætur vegna mál­sókn­ar­inn­ar.

Kveðið á um sam­keppn­is­bann

For­saga máls­ins er sú að Sýn keypti hluta af fjöl­miðla­veldi 365 á árinu 2017 fyrir alls 7,9 millj­arða króna. Um var að ræða alla ljós­vaka­miðlar félags­­ins og frétta­vef­inn Vísi.­is. Eftir í 365 stóð Frétta­­blaðið og tengdir miðlar sem voru svo seldir til nýrra eig­enda í fyrra og eru nú reknir í félag­inu Torgi ehf.

Auglýsing
Í kaup­samn­ingi var kveðið á um að Ingi­björg og Jón Ásgeir mættu ekki fara í sam­keppni við þá miðla sem Sýn hefði keypt í til­tek­inn tíma. 

Rekstur fjöl­miðla Sýnar hafa ekki gengið vel frá því að kaupin áttu sér stað. Í byrjun árs lækk­aði félagið til að mynda við­skipta­vild vegna fjöl­miðl­anna sem keyptir voru um 2,5 millj­arða króna. 

Tekjur Sýnar af fjöl­miðla­rekstri dróg­ust saman um 446 millj­ónir króna milli áranna 2018 og 2019 og á fyrsta árs­fjórð­ungi yfir­stand­andi árs dróg­ust tekjur félags­­ins vegna fjöl­miðla­hluta rekst­­ur­s­ins saman um 229 millj­­ónir króna frá sama árs­fjórð­ungi í fyrra. 

Stefnt út af hlað­varpi og Hring­braut

Sýn ákvað að stefna hjón­unum og 365 vegna þess að stjórn­­endur Sýnar telja að teng­ing vef­mið­ils­ins fretta­bla­did.is við ljós­vaka­miðla, bæði útvarp og sjón­­varp, sé með öllu óheimil sam­­kvæmt kaup­­samn­ingnum frá árinu 2017. Mið­ill­inn haldi úti hlað­varpi, vísi á vef sjón­­varps­­stöðv­­­ar­innar Hring­brautar (líka í eigu Torgs) af for­­síðu sinni og sýni ýmis konar mynd­­bönd, sem telj­ist ljós­vaka­efn­i. Vegna þessa hefur Sýn farið fram á að hinir stefndu greiði sér fimm millj­ónir króna fyrir hvern dag sem lið­inn er frá samn­ings­broti. Í lok fyrsta árs­fjórð­ungs stóð sú tala í 1,7 millj­arði króna. Í dag er hún nær tveimur millj­örðum króna.

Í gagn­stefnu Ingi­bjargar og Jóns Ásgeirs, sem Mark­að­ur­inn fjallar um í dag, er þessu með öllu hafn­að. Fyrir því eru tvö meg­in­rök. Í fyrsta lagið seldi 365 eft­ir­stand­andi miðla sína, sem að uppi­stöðu var Frétta­blaðið og vefur þess, til Helga Magn­ús­sonar fjár­festis og sam­starfs­manna hans í fyrra í tveimur skref­um. Þegar það síð­ara var stig­ið, í októ­ber, var sjón­varps­stöð­inni Hring­braut og tengdri síðu rennt inn í Torg, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins. Þá þegar hafði Frétta­blaðið hafið fram­leiðslu og birt­ingu á hlað­varpi á fretta­bla­did.­is. 

Hjónin hafna því að umrædd hlað­varps­gerð sé sam­keppni við þá ljós­vaka­miðla sem seldir hafi verið til Sýn­ar. Auk þess segj­ast þau ekki bera ábyrgð á sjón­varps­rekstri Hring­braut­ar, enda hafi þau verið búin að selja fjöl­miðl­anna þegar honum var rent inn í útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins. Það hafi ekki verið staf krókur um það í kaup­samn­ingnum að þau hafi verið skuld­bundin til þess að sjá til þess að óskyldur þriðji aðili yrði bund­inn af sam­keppn­is­bann­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent