Viðskipti með fasteignir minnka til muna í COVID-19 faraldri

COVID-19 faraldurinn hefur haft mikil áhrif á fasteignaviðskipti en þegar apríl á þessu ári er borinn saman við apríl 2019 fækkar kaupsamningum um tæp 50 prósent og velta minnkar nær um helming.

Hús í miðbæ Reykjavíkur
Auglýsing

Fjöldi þing­lýstra kaup­samn­inga um fast­eignir við sýslu­manns­emb­ættin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í apríl 2020 var 282. Heild­ar­velta nam 15,3 millj­örðum króna og með­al­upp­hæð á hvern kaup­samn­ing var 54,1 milljón króna. Við­skipti með eignir í fjöl­býli námu 11,7 millj­örð­um, við­skipti með eignir í sér­býli 3 millj­örðum og við­skipti með aðrar eignir 0,5 millj­örðum króna.

Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum Þjóð­skrár um fast­eigna­mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í apríl á þessu ári.

Þegar apríl 2020 er bor­inn saman við apríl 2019 fækkar kaup­samn­ingum um 47,8 pró­sent og velta minnkar um 45,6 pró­sent. Í apríl 2019 var 540 kaup­samn­ingum þing­lýst, velta nam 28,1 millj­arði króna og með­al­upp­hæð á hvern kaup­samn­ing 52 millj­ónir króna, að því er fram kemur hjá Þjóð­skrá.

Auglýsing

Þegar apríl 2020 er bor­inn saman við mars 2020 fækkar kaup­samn­ingum um 53,9 pró­sent og velta minnkar um 54,3 pró­sent. Í mars 2020 var 612 kaup­samn­ingum þing­lýst, velta nam 33,4 millj­örðum króna og með­al­upp­hæð á hvern kaup­samn­ing 54,5 millj­ónir króna.

Samanburður á apríl 2019 og apríl 2020 Tafla: Þjóðskrá

Þjóð­skrá vekur athygli á að með­al­upp­hæð kaup­samn­ings sé ekki hægt að túlka sem með­al­verð eigna og þar með sem vís­bend­ingu um verð­þró­un. Þetta sé vegna þess að hver kaup­samn­ingur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mis­stór­ar, mis­gamlar og svo fram­veg­is.

Flestum sam­ingum þing­lýst á Norð­ur­landi utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins

Fjöldi þing­lýstra kaup­samn­inga um fast­eignir á Norð­ur­landi í apríl 2020 var 78, sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár um fast­eigna­mark­að­ur­inn utan höf­uð­borg­ar­svæðis í apríl á þessu ári. Þar af voru 44 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 25 samn­ingar um eignir í sér­býli og 9 samn­ingar um ann­ars konar eign­ir. Heild­ar­veltan var 2.526 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 32,4 millj­ónir króna. Af þessum 78 voru 52 samn­ingar um eignir á Akur­eyri. Þar af voru 39 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 9 samn­ingar um eignir í sér­býli og 4 samn­ingar um ann­ars konar eign­ir. Heild­ar­veltan var 1.832 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 35,2 millj­ónir króna.

Á Aust­ur­landi var 12 samn­ingum þing­lýst. Þar af var 1 samn­ingur um eign í fjöl­býli, 10 samn­ingar um eignir í sér­býli og 1 samn­ingur um ann­ars konar eign. Heild­ar­veltan var 336 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 28 millj­ónir króna. Af þessum 12 voru 3 samn­ingar um eignir í Fjarða­byggð. Þar af voru 2 samn­ingar um eignir í sér­býli og 1 samn­ingur um ann­ars konar eign. Heild­ar­veltan var 32 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 10,5 millj­ónir króna.

Á Suð­ur­landi var 57 samn­ingum þing­lýst. Þar af voru 11 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 32 samn­ingar um eignir í sér­býli og 14 samn­ingar um ann­ars konar eign­ir. Heild­ar­veltan var 1.792 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 31,4 milljón króna. Af þessum 57 voru 39 samn­ingar um eignir á Árborg­ar­svæð­in­u*. Þar af voru 8 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 28 samn­ingar um eignir í sér­býli og 3 samn­ingar um ann­ars konar eign­ir. Heild­ar­veltan var 1.339 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 34,3 millj­ónir króna.

Á Reykja­nesi var 38 samn­ingum þing­lýst. Þar af voru 16 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 19 samn­ingar um eignir í sér­býli og 3 samn­ingar um ann­ars konar eign­ir. Heild­ar­veltan var 1.221 milljón króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 32,1 millj­ónir króna. Af þessum 38 voru 25 samn­ingar um eignir í Reykja­nes­bæ. Þar af voru 13 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 10 samn­ingar um eignir í sér­býli og 2 samn­ingar um ann­ars konar eign­ir. Heild­ar­veltan var 886 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 35,4 millj­ónir króna.

Á Vest­ur­landi var 48 samn­ingum þing­lýst. Þar af voru 26 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 15 samn­ingar um eignir í sér­býli og 7 samn­ingar um ann­ars konar eign­ir. Heild­ar­veltan var 2.024 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 42,2 millj­ónir króna. Af þessum 48 voru 35 samn­ingar um eignir á Akra­nesi. Þar af voru 24 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 10 samn­ingar um eignir í sér­býli og 1 samn­ingur um ann­ars konar eign. Heild­ar­veltan var 1.682 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 48,1 millj­ónir króna.

Á Vest­fjörðum var 10 samn­ingum þing­lýst. Þar af voru 2 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 7 samn­ingar um eignir í sér­býli og 1 samn­ingur um ann­ars konar eign. Heild­ar­veltan var 242 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 24,2 millj­ónir króna. Af þessum 10 voru 6 samn­ingar um eignir á Ísa­firði. Þar af voru 2 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 4 samn­ingar um eignir í sér­býli. Heild­ar­veltan var 166 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 27,7 millj­ónir króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent