Allt að 200 manns verður heimilt að koma saman næstkomandi mánudag í stað 50 nú, heimilt verður að opna líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði og öllum veitingastöðum, þar með töldum krám og skemmtistöðum, og einnig spilasölum, verður heimilt að hafa opið til klukkan 23:00. Þetta kemur fram í nýrri auglýsingu Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem tekur gildi þann 25. maí næstkomandi.
Auglýsingin birtist á vef Stjórnarráðsins í dag en hún gildir til 21. júní næstkomandi.
Hvatt er til þess að viðhalda tveggja metra nálægðarmörkum eftir því sem kostur er. Auglýsingin er í fullu samræmi við tillögur sóttvarnalæknis, að því er fram kemur í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins. Ráðherra kynnti ákvörðun sína um breytingar á takmörkun á samkomum á fundi ríkisstjórnar í morgun.
Tilslakanir virðast ekki hafa leitt til fjölgunar sjúkdómstilfella
Með nýrri auglýsingu verður framkvæmd tveggja metra reglurnar breytt nokkuð. Horft er til þess að vernda þá sem eru viðkvæmir með því að skapa þeim sem það kjósa aðstæður til að viðhalda tveggja metra fjarlægðarreglu. Þannig verði til dæmis á veitingastöðum, í leikhúsum og bíósölum boðið upp á að minnsta kosti nokkur sæti sem geri þetta kleift.
Á líkamsræktarstöðvum verður, líkt og á sund- og baðstöðum, takmörkun á fjölda gesta sem miðast við að þeir séu aldrei fleiri en nemur helmingi af leyfilegum hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi. Eins og fram kemur í auglýsingunni verða áfram gerðar sömu kröfur um sótthreinsun og þrif almenningsrýma og hingað til.
„Frá upphafi COVID-19 faraldursins hér á landi hafa greinst smit hjá rúmlega 1.800 einstaklingum. Undanfarið hefur nýsmitum fækkað verulega og hafa aðeins fimm einstaklingar greinst það sem af er maímánuði. Í minnisblaði sóttvarnalæknis segir að þær tilslakanir sem gerðar voru á samkomutakmörkunum 4. maí síðastliðinn virðist ekki hafa leitt til fjölgunar sjúkdómstilfella,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.