Líkamsræktarstöðvar og krár opna á mánudaginn

Hvatt er í nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra til þess að viðhalda tveggja metra nálægðarmörkum eftir því sem kostur er.

Grandi Mathöll
Auglýsing

Allt að 200 manns verður heim­ilt að koma saman næst­kom­andi mánu­dag í stað 50 nú, heim­ilt verður að opna lík­ams­rækt­ar­stöðvar með sömu tak­mörk­unum og gilda um sund- og bað­staði og öllum veit­inga­stöð­um, þar með töldum krám og skemmti­stöð­um, og einnig spila­söl­um, verður heim­ilt að hafa opið til klukkan 23:00. Þetta kemur fram í nýrri aug­lýs­ingu Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mörkun á sam­komum vegna far­sóttar sem tekur gildi þann 25. maí næst­kom­andi.

Aug­lýs­ingin birt­ist á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag en hún­ ­gildir til 21. júní næst­kom­andi.

Hvatt er til þess að við­halda tveggja metra nálægð­ar­mörkum eftir því sem kostur er. Aug­lýs­ingin er í fullu sam­ræmi við til­lögur sótt­varna­lækn­is, að því er fram kemur í til­kynn­ingu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. Ráð­herra kynnti ákvörðun sína um breyt­ingar á tak­mörkun á sam­komum á fundi rík­is­stjórnar í morg­un.

Auglýsing

Til­slak­anir virð­ast ekki hafa leitt til fjölg­unar sjúk­dómstil­fella

Með nýrri aug­lýs­ingu verður fram­kvæmd tveggja metra regl­urnar breytt nokk­uð. Horft er til þess að vernda þá sem eru við­kvæmir með því að skapa þeim sem það kjósa aðstæður til að við­halda tveggja metra fjar­lægð­ar­reglu. Þannig verði til dæmis á veit­inga­stöð­um, í leik­húsum og bíó­sölum boðið upp á að minnsta kosti nokkur sæti sem geri þetta kleift.

Á lík­ams­rækt­ar­stöðvum verð­ur, líkt og á sund- og bað­stöð­um, tak­mörkun á fjölda gesta sem mið­ast við að þeir séu aldrei fleiri en nemur helm­ingi af leyfi­legum hámarks­fjölda sam­kvæmt starfs­leyfi. Eins og fram kemur í aug­lýs­ing­unni verða áfram gerðar sömu kröfur um sótt­hreinsun og þrif almenn­ings­rýma og hingað til.

„Frá upp­hafi COVID-19 far­ald­urs­ins hér á landi hafa greinst smit hjá rúm­lega 1.800 ein­stak­ling­um. Und­an­farið hefur nýsmitum fækkað veru­lega og hafa aðeins fimm ein­stak­lingar greinst það sem af er maí­mán­uði. Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis segir að þær til­slak­anir sem gerðar voru á sam­komu­tak­mörk­unum 4. maí síð­ast­lið­inn virð­ist ekki hafa leitt til fjölg­unar sjúk­dómstil­fella,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent