Veiran mögulega að missa þróttinn

Sóttvarnalæknir segir að hugsanlega sé kórónuveiran að missa þróttinn. Þeir sem smitast hafa af COVID-19 undanfarið eru ekki mikið veikir. Aðeins sex smit hafa greinst hér á landi í maí.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Auglýsing

Aðeins sex smit af kór­ónu­veirunni hafa greinst hér á landi í maí. Ekk­ert smit greind­ist í gær. Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir telur að veiran sé enn úti í sam­fé­lag­inu en að smitið sé almennt lít­ið. „Það sem er ein­kenn­andi fyrir þessa ein­stak­linga sem hafa greinst upp á síðkastið er að þeir eru ekki mikið veik­ir,“ sagði Þórólf­ur. „Og hvað þýðir það? Það er erfitt að segja til um það. 

Það gæti verið að þetta séu ein­stak­lingar sem hafi verið búnir með sín veik­indi. Það gæti líka vel verið að það sé ein­hver þróttur að fara úr veirunni, hugs­an­lega. Alla­vega er til­hneig­ingin sú að veik­indin hafa minnkað eftir því sem liðið hefur frá 28. febr­ú­ar. Það gæti gefið okkur hugs­an­lega vís­bend­ingu um það að veiran sé ekki eins ágeng og slæm og hún var. En tím­inn verður að leiða það í ljós. Það er örugg­lega smit þarna úti, það er lítið og við erum fljót að finna það og beita við­eig­andi ráð­stöf­unum ef að svo fer.“

Þórólfur sagði ómögu­legt að segja til um það á þess­ari stundu hvernig veiran muni haga sér í haust og næstu ár. Miklar vanga­veltur hafa verið um hverju hún gæti tekið upp á. Hann sagði að kór­ónu­veirur almennt væru ekki þekktar fyrir það að valda árs­tíða­bundnum sýk­ingum eins og inflú­ens­an. Hann nefndi sem dæmi að veiran sem olli SARS hafi dáið út. „Það væri nýlunda ef þessi kór­ónu­veira færi að valda árs­tíða­bundn­um, slæmum sýk­ing­um. En þetta er ekki vit­að. Við verðum bara að lifa nógu lengi til að sjá þetta, upp­lifa þetta.“

Auglýsing

Í dag var síð­asti upp­lýs­inga­fundur almanna­varna vegna COVID-19, í bili að minnsta kosti. Eng­inn liggur á spít­ala með COVID en í heil­brigð­is­kerf­inu eru þó ein­stak­linga sem enn eru að glíma við eft­ir­köst sjúk­dóms­ins, sagði Þórólf­ur. Á fund­inum ítrek­aði hann að sjúk­dóm­ur­inn væri enn lífs­hættu­leg­ur. Hann sagði rann­sóknir á lyfjum sem gagn­ist við sjúk­dómnum lofa góðu en að alltof snemmt sé að fagna sigri í þeim efn­um.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent