Fyrirtækin sem ætla að endurgreiða hlutabætur fá reikning í vikunni

Stöndug fyrirtæki sem nýttu sér hlutabótaleiðina, en hafa óskað eftir því að fá að endurgreiða það sem þau fengu úr ríkissjóði í gegnum hana, munu fá send skilaboð í vikunni um hvað þau skulda og hvernig þau eiga að borga.

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar.
Auglýsing

Vinnu­mála­stofnun er að taka saman fjár­hæðir sem runnu til fyr­ir­tækja sem hafa óskað eftir því að end­ur­greiða hluta­bætur starfs­fólks síns. Unnið var að afstemn­ingu á föstu­dag og umrædd fyr­ir­tæki munu fá send skila­boð í þess­ari viku þar sem fram kemur hvaða fjár­hæð hvert og og eins auk reikn­ings­núm­ers og kenni­tölu.

Þetta kemur fram í svari Unnar Sverr­is­dótt­ur, for­stjóra Vinnu­mála­stofn­un­ar, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. 

Fjöl­miðlar hafa varpað ljósi á að í hópi þeirra fyr­ir­tækja sem nýttu sér hluta­bóta­leið­ina hafi verið fyr­ir­tæki sem eru í öfl­ugum rekstri og búa yfir traustum efna­hag. Rík­is­end­ur­skoðun sagði í skýrslu sinni um hluta­bóta­leið­ina, sem birt var á fimmtu­dag, að ekki yrði séð af lög­unum um leið­ina né lög­skýr­ing­ar­gögnum að það hafi verið ætl­unin að stöndug fyr­ir­tæki myndu nýta sér leið­ina.

Eftir umfjöllun fjöl­miðla til­kynntu nokkur fyr­ir­tæki að þau hefðu horfið frá nýt­ingu leið­ar­innar og sum þeirra hafa boðað end­ur­greiðslu á fram­lagi Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs. Fyrst til að gera það var Skelj­ung­ur, þann 28. apr­íl, en í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar kemur fram að að minnsta kosti sjö fyr­ir­tæki hafi boðað slíka end­ur­greiðslu. 

Auglýsing
Á meðal fyr­ir­tækja sem tekið hafa þá ákvörðun að annað hvort end­ur­greiða eða hætta nýt­ingu á hluta­bóta­leið­inni eru Skelj­ung­­­ur, Hag­­­ar, Fest­i, Origo, Brim, Öss­­­ur, Reg­inn, Kaup­­fé­lag Skag­­firð­inga og Öss­­ur. Á föstu­dag bætt­ist svo Icelanda­ir við þann hóp sem ætlar að hætta að nýta leið­ina. 

Haft hefur verið eftir Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að öllum fyr­ir­tækjum sem hafa nýtt sér hluta­starfa­leið­ina verði sent bréf þar sem óskað verður eftir rök­stuðn­ingi fyrir skerð­ingu starfs­hlut­falls. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur auk þess sagt að ef í ljós komi að fyr­ir­tæki hafi nýtt sér úrræðið án „full­nægj­andi skýr­inga“ sé ekki úti­lokað að farið verði fram á að þau end­ur­greiði rík­in­u. 

Umtals­verðar breyt­ingar verða á hluta­bóta­leið­inni frá og með næstu mán­aða­mót­um. Þá verða þau fyr­ir­tæki sem ætla að nýta sér hluta­­bóta­­leið­ina gert að stað­­festa að þau hafi ekki í hyggju að greiða út arð til hlut­hafa, lækka hlutafé með greiðslu til hlut­hafa, greiða óum­­samda kaupauka, kaupa eigin hluta­bréf eða greiða eig­endum sínum eða æðstu stjórn­­endum mán­að­­ar­­laun sem nema hærri fjár­­hæð en þremur millj­­ónum króna á næstu árum. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent