Það starfsfólk sem áfram starfar hjá Icelandair Group og flestum dótturfélögum færist flest í fyrra starfshlutfall frá og með 1. júní. Þó hefur verið óskað eftir því að það starfsfólk taki á sig 10 prósent launaskerðingu eða 10 prósent skert starfshlutfall í júní og júlí. Laun forstjóra og stjórnar munu áfram skerðast um 30 prósent og laun framkvæmdastjóra um 25 prósent.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair sem send var út í dag.
„Icelandair Group hefur síðustu tvenn mánaðamót gripið til yfirgripsmikilla aðgerða sem fólu í sér verulegar uppsagnir og breytingar á skipulagi félagsins. Á sama tíma hefur félagið lagt ríka áherslu á að halda uppi grunnstarfsemi á öllum sviðum og tryggja þar með nauðsynlegan sveigjanleika til að geta brugðist hratt við um leið og markaðir opnast á ný og eftirspurn eftir flugi og ferðalögum myndast. Í maímánuði hafa langflestir starfsmenn félagsins verið í skertu starfshlutfalli í samræmi við hlutabótaleið stjórnvalda. Aðrir hafa verið í fullu starfi með skert laun,“ segir í tilkynningunni.
Eftir að hafa skoðað málið gaumgæfilega sé niðurstaðan sú að hlutabótaleið stjórnvalda muni ekki eiga við lengur í starfsemi Icelandair Group frá og með 1. júní, nema hjá Iceland Travel. Markmiðið með úrræði stjórnvalda sé skýrt – að viðhalda ráðningarsambandi þar sem verkefnum hafi fækkað verulega. Nú sé svo komið að félagið þurfi á meira vinnuframlagi að halda en síðustu mánuði.
Þurfa fleiri hendur
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir í tilkynningunni að til þess að geta undirbúið og hafið sókn af fullum krafti, þurfi félagið nú fleiri hendur á dekk. „Það er í mörg horn að líta enda krefst undirbúningur fyrir opnun landsins mikillar vinnu varðandi flugáætlun, sölu- og markaðsmál, þjónustu og útfærslu sóttvarna. Á sama tíma hefur verið aukning verkefna í frakt- og leiguflugi, auk þess sem sinna þarf viðhaldi á þeim hluta flugflota félagsins sem er kyrrsettur. Þar að auki koma margar deildir að þeirri vinnu sem er nú í fullum gangi vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar félagsins. Við viljum hafa sem flesta í fullu starfi eftir því sem hægt er og vonumst til þess að starfsmenn komi til móts við beiðni okkar um skert launa- eða starfshlutfall á meðan við komumst yfir erfiðasta hjallann.“