Ísland leggur fram hálfan milljarð í þróun á bóluefni en Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tilkynnti um framlag Íslands til sérstaks aðgerðabandalags fjölmargra ríkja, fyrirtækja og stofnana á ráðstefnu bólusetningarbandalagsins Gavi í dag.
Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins í dag.
Aðgerðabandalagið sem miðar að því að hraða þróun, framleiðslu og dreifingu á bóluefni við COVID-19 var stofnað fyrir rúmum mánuði og er markmið þess jafnframt að stuðla að sýnatökum og meðferðarúrræðum fyrir alla, óháð búsetu og efnahag.
Samkvæmt tilkynningunni skiptist framlag Íslands þannig að 250 milljónir króna fara til bólusetningarbandalagsins Gavi og sama upphæð til CEPI (e; Coalition for Epidemic Preparedness Innovation) sem er samstarfsvettvangur fyrirtækja og opinberra aðila um viðbúnað gegn farsóttum.
„Fjölmargar alþjóðastofnanir og sjóðir á sviði heilbrigðismála, auk Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar standa að aðgerðabandalaginu og hefur fjöldi ríkja tilkynnt um framlög til mismunandi stofnana undir hatti þess. Þannig hafa Norðmenn lofað milljarði Bandaríkjadala og Bandaríkin, Bretland, Kanada og Þýskaland lofað hundruðum milljóna Bandaríkjadala,“ segir á vef Stjórnarráðsins.
8,8 milljarðar Bandaríkjadala söfnuðust
Katrín sagði í upphafsávarpi sínu að jafn aðgangur að heilbrigðisþjónustu væri einn mikilvægasti þáttur heilbrigðismála og tryggði grunnmannréttindi; réttinn til lífs. Bólusetning færði öllum kynslóðum tækifæri til heilbrigðrar og innihaldsríkrar ævi.
Auk forsætisráðherra Íslands ávarpaði fjöldi þjóðarleiðtoga fjarráðstefnuna sem boðað var til af Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands. Bill Gates, stofnandi Microsoft, var jafnframt einn ræðumanna en stofnun Bill og Melindu Gates, hefur heitið 250 milljónum Bandaríkjadala til baráttunnar gegn COVID-19. Markmið Gavi ráðstefnunnar í dag var að safna samtals 7,4 milljörðum Bandaríkjadala og náðist það og gott betur því alls söfnuðust 8,8 milljarðar, að því er fram kemur hjá Stjórnarráðinu.