Segir stórvirka fræðimenn sem fella dóma valda sér sjálfsskaða

Fjármála- og efnahagsráðherra segir að fræðimenn sem fella stóra dóma um einstaklinga og stjórnmálaflokka gefi færi á því að tekið sé „á móti“. Þá séu menn komnir inn á nýtt svið sem hafi „ekkert endilega með akademíuna“ að gera.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði á fundi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í morgun að vara­samt væri þegar menn í valda­stöðu vægju að heiðri fræði­manna. „En þegar fræði­menn segja um stjórn­mála­menn eða stjórn­mála­flokka [...] að þeir séu að verða and­lit spill­ing­ar­innar þá ætla ég að fá að lýsa þeirri skoðun minni að það sé ekki akademísk nið­ur­staða. Það er eitt­hvað allt ann­að,“ sagði hann.

Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­maður Pírata og for­maður nefnd­ar­inn­ar, spurði ráð­herr­ann hvort eðl­is­munur væri á því hvernig fræði­menn tjáðu sig um þá sem valdið hafa og hvernig ráða­menn tjáðu sig um fræði­menn. 

„Ég les svo­lítið út úr þessu að ráð­herra finn­ist að fræði­menn eigi ekki að gagn­rýna stjórn­völd eða að það sé ein­hvers konar lína sem fræði­menn mega ekki ganga yfir til þess að telj­ast ekki nógu góðir aka­demik­ar,“ sagði hún og spurði hvort honum hefði fund­ist Þor­valdur Gylfa­son, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, ganga of langt í sinni gagn­rýni á Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Auglýsing

„Menn komnir út fyrir fræði­störf sín“

­Bjarni svar­aði og sagði að þegar fræði­menn tækju ákvörðun um að fara inn á vett­vang stjórn­mál­anna og ger­ast þar stór­virkir, jafn­vel fara í fram­boð og „fella stóra dóma um ein­stak­linga og stjórn­mála­flokka“ og grípa til sam­lík­inga við hel­för­ina og nas­ista í Þýska­landi, þá væru þeir að valda sér sjálfs­skaða sem fræði­menn – frekar en að efla sig.

„Það er mín nið­ur­staða – mín skoð­un. Og þá eru menn líka um leið að gefa færi á því að það sé tekið á móti, því þá eru menn komnir út fyrir fræði­störf sín. Þá eru menn komnir inn á nýtt svið, nýjan vett­vang þjóð­fé­lags­um­ræð­unnar sem hefur ekk­ert endi­lega með aka­dem­í­una að gera. Og menn bregða fyrir sig þeim skildi, akademískum skildi: „Heyrðu, hér hef ég minn akademíska skjöld og menn geta ekki vegið að mér á þessum vett­vangi vegna þess að ég er með þennan skjöld.“.“

Bjarni telur að þeir fræði­menn séu búnir að leggja þennan skjöld frá sér og séu komnir inn í allt aðra umræðu. Þeir verði þá að þola að þeim sé svarað og mætt. „Þá koma sjón­ar­miðin um sam­tal valds­haf­anna og fræði­manna­sam­fé­lags­ins í algjör­lega nýtt ljós.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent