Hlutur ferðaþjónustunnar stóð í stað síðustu fjögur ár

Samkvæmt Hagstofunni drógust heildarútgjöld erlendra ferðamanna hér á landi saman milli áranna 2018 og 2019 en jukust hjá innlendum ferðamönnum.

Ferðamenn
Auglýsing

Hlutur ferða­þjón­ustu í lands­fram­leiðslu nam 8 pró­sent árið 2019 sam­kvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum ferða­þjón­ustu­reikn­inga, að því er fram kemur í frétt Hag­stof­unnar í dag.

Til sam­an­burðar nam hlutur ferða­þjón­ust­unnar 8,1 pró­sent árin 2016, 2017 og 2018 sam­kvæmt end­ur­skoð­uðu mati. Hlut­deild ferða­þjón­ustu í lands­fram­leiðslu hefur því nán­ast staðið í stað frá 2016.

Mynd: Hagstofan

Ferða­þjón­ustu­reikn­ingar eru hlið­ar­reikn­ingar þjóð­hags­reikn­inga og er ætlað að leggja mat á hlut ferða­þjón­ust­unnar í hag­kerf­inu og þróun hennar sem atvinnu­grein­ar. Ferða­þjón­ustu­reikn­ingar taka til útgjalda inn­lendra sem og erlendra ferða­manna.

Auglýsing

Neysla íslenskra ferða­manna eykst milli ára

Alls voru komur erlendra ferða­manna hingað til lands tælega 2,6 millj­ónir árið 2019 sem var 8,7 pró­sent fækkun frá fyrra ári. Flestir ferða­menn eru gistifar­þegar sem koma til lands­ins með milli­landa­flugi. Gistifar­þegum fækk­aði um 14,1 pró­sent árið 2019 en gistin­óttum fækk­aði ein­ungis um 1,7 pró­sent. Til sam­an­burðar þá fjölg­aði gistifar­þegum um 5,3 pró­sent árið 2018 en gistin­óttum um 2,3 pró­sent.

Heild­ar­út­gjöld inn­lendra og erlendra ferða­manna námu 552,6 millj­örðum króna árið 2019, sam­kvæmt Hag­stof­unni. Heild­ar­út­gjöld erlendra ferða­manna hér á landi námu 383,4 millj­örðum króna árið 2019 sam­an­borið við 394,2 millj­arða króna árið 2018.

Mynd: Hagstofan

Tæpur fjórð­ungur útgjald­anna var vegna kaupa á gisti­þjón­ustu eða 86,9 millj­arðar króna. Þá greiddu erlendir ferða­menn 75,7 millj­arða til ferða­skrif­stofa og ferða­skipu­leggj­enda og 63,2 millj­arða til inn­lendra flug­fé­laga vegna far­gjalda hingað til lands og ferða inn­an­lands. Neysla inn­lendra ferða­manna nam 138,1 millj­örðum árið 2019, sem er átta millj­örðum meira en árið áður. Önnur neysla nam 31,1 millj­arði króna. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent