Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, fjallaði um ofbeldi og leyndarhyggju í ræðu sinni undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag en hann sagði suma þingmenn fela sig á bak við trúnað og lokaðar dyr.
„Ofbeldi þrífst í þögn þegar gerendur fá að komast upp með hegðun sína í skjóli þess að aðrir annað hvort þegi eða skilji ekki hvað sé í gangi.
Nefndarvinnan hér á þingi er almennt séð bak við luktar dyr og það er bannað að vitna beint í orð manna og fyrir því fyrirkomulagi eru ágætis rök en á sama tíma er hægt að misnota það skjól sem það bann veitir til þess að fela ofbeldi,“ sagði hann.
Björn Leví benti á að það væru þó ekki einungis orð sem tjá ofbeldi – það væru ekki síður athafnir sem gætu birst í duldum hótunum, ásökunum eða annarri áreitni. „Með það í huga við ég minna á að það eru Píratar sem hafa helst talað um gagnsæi í nefndum og opna nefndarfundi á meðan ýmsir aðrir hafa viljað halda í þann hulinsskjöld sem getur falið ofbeldið.
Vinsamlegast hafi það í huga í framhaldinu; þau sem hafa séð eða heyrt – segið eitthvað. Á þessum vettvangi felum við okkur oft á bak við að störfin hérna séu í pólitískum ágreiningi á einhvern hátt sem sé bara mjög eðlilegur. Það er á vissan hátt skiljanlegt. En aftur, það er hægt að nota það sem skálkaskjól fyrir óásættanlega hegðun og áreitni sem við eigum að gera greinarmun á og upplýsa,“ sagði hann.
Valdníðsla og linnulausar árásir
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, sagði af sér formennsku í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd við upphaf þingfundar í gær. Í ræðu sinni vegna þessa sagði hún að tilraunir minnihlutans í nefndinni til að sinna því eftirlitshlutverki sem hún á að sinna hefðu orðið „meirihlutanum tilefni til valdníðslu og linnulausra árása“.
Í ræðunni sagði hún skýrasta dæmið vera hvernig staðið hefði verið í vegi fyrir því að frumkvæðisathugun færi fram á hæfi Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. „Með þessu er meirihlutinn að setja hættulegt fordæmi, veikja eftirlitshlutverk Alþingis með framkvæmdarvaldinu.“
Hún sagði enn fremur að meirihlutinn persónugerði starf nefndarinnar til að ná markmiðum sínum. „Til þess að réttlæta þessa aðför sína kýs meirihluti nefndarinnar að draga persónu mína sífellt niður í svaðið og nota mig sem blóraböggul.“