Arnfríður metin hæfust til að sitja í Landsrétti

Dómnefnd um hæfi umsækjenda um lausa stöðu í Landsrétti telur að sitjandi dómari við réttinn standi öðrum umsækjendum framar og sé hæfust til að gegna embætti dómara við hann. Dómarinn hefur ekki starfað við réttinn frá því í mars í fyrra.

Landsréttur
Auglýsing

Dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara hefur skilað umsögn sinni um umsækj­endur um skipun í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt sem aug­lýst var laust til umsóknar 17. apríl 2020. Alls sóttu fimm um starfið og nið­ur­staðan var sú að Arn­fríður Ein­ars­dóttir væri hæfust til að hljóta skipun í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt. Arn­fríður er þegar Lands­rétt­ar­dóm­ari en hefur ekki mátt dæma við rétt­inn frá því í mars í fyrra, eftir nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra fjall­aði um skipun nýs Lands­rétt­ar­dóm­ara og lausn slíks frá störfum á rík­is­stjórn­ar­fundi í morg­un. Því eru allar líkur á því að Arn­fríður verði skipuð í dag.

Hún yrði þá annar þeirra fjög­urra dóm­ara við rétt­inn sem það gildir upp sem hafa sótt um lausar stöður og verið skip­aðir í þær. Hinn er Ásmundur Helga­son sem var skip­aður í mars síð­ast­liðn­um, og óskaði sam­hliða eftir lausn úr emb­ætt­i. 

Aðrir umsækj­endur nú voru Ást­ráður Har­alds­­son, hér­­aðs­­dóm­­ari, Helgi Sig­­urðs­­son hér­­aðs­­dóm­­ari, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, dóm­­ari við Lands­rétt og Ragn­heiður Snorra­dótt­ir, hér­­aðs­­dóm­­ari.

Auglýsing
Sú staða sem Arn­fríður gegndi áður mun nú vænt­an­lega losna og aug­lýst verður eftir umsóknum um hana í kjöl­far­ið.

Dóm­nefnd­ina nú skip­uðu Eiríkur Tóm­as­son, for­mað­ur, Hall­dór Hall­dórs­son, Kristín Bene­dikts­dótt­ir, Óskar Sig­urðs­son og Sig­ríður Þor­geirs­dótt­ir. Í umsögn hennar segir að það sé nið­ur­staða dóm­nefndar að Arn­fríður hafi mesta reynslu þeirra sem sóttu um af dóm­störf­um, mikla reynslu af stjórn­sýslu­störfum og veru­lega reynslu af stjórn­un. Auk þess hafi hún lokið háskóla­námi í opin­berri stjórn­sýslu og stjórnun og sinnt öðrum störfum sem nýt­ast dóm­ara við Lands­rétt. „Síð­ast en ekki síst hefur Arn­fríður sýnt í störfum sínum sem dóm­ari að hún hefur gott vald jafnt á einka­mála- og sem saka­mála­rétt­ar­fari og á auð­velt með að leysta úr flóknum lög­fræði­legum ágrein­ings­efnum á grein­ar­góðan og rök­studdan hátt.

Afleið­ing af Lands­dóms­mál­inu

Arn­fríður var á meðal þeirra fjög­­urra ein­stak­l­inga sem voru ekki metin á meðal 15 hæf­­ustu í hæfn­is­mati dóm­­nefndar þegar dóm­­arar voru upp­­haf­­lega skip­aðir í Lands­rétt í aðdrag­anda stofn­unar hans, en voru samt sem áður skipuð í emb­ætti við rétt­inn. Það gerð­ist eftir að Sig­ríður Á. And­er­sen, þáver­andi dóms­­­­­mála­ráð­herra, ákvað að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­­­­­­­­­nefndar og til­­­­­­­­­­­­­­­nefna fjóra ein­stak­l­inga dóm­­­­­­­­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­­­­­­­ustu og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­­­­­­­­ustu. Alþingi sam­­­­­­­­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

Í kjöl­farið hafa íslenskir dóm­stólar úrskurðað að Sig­ríður hafi brotið stjórn­sýslu­lög með atferli sínu. Auk þess kom­st Mann­rétt­inda­­­­­dóm­­­­­stóll Evr­­­­­ópu að þeirri nið­­­­­ur­­­­­stöðu í mál­inu í mars í fyrra að dóm­­­­­ar­­­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­­­­með­­­­­­­­­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­­­mála­ráð­herra.

Í grein­ar­gerð sinni fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum hélt Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður þess sem kærði málið þang­að, því meðal ann­ars fram að þáver­andi dóms­mála­ráð­herra hefði hand­valið umsækj­endur á þann lista sem hún lagði fyrir Alþingi til sam­þykkt­ar. Það hafi hún gert á grund­velli vin­áttu og póli­tískra tengsla. Í mála­til­bún­aði Vil­hjálms var því haldið fram að Arn­fríð­ur, sem er eig­in­kona Brynjars Níels­sonar þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi verið skipuð sem hluti af hrossa­kaupum innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar sem Brynjar gaf í stað­inn eftir odd­vita­sæti sitt í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu í síð­ustu kosn­ingum til Sig­ríðar Á. And­er­sen. Þessu hafa bæði Brynjar og Sig­ríður hafnað með öllu. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent