Tónlistarmaðurinn og leikarinn Helgi Björnsson var í dag útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur af Degi B. Eggertssyni borgarstjóri við hátíðlega athöfn í Höfða.
Útnefningin er heiðursviðurkenning til listamanns sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi og samfélagi. Helgi vakti mikla athygli með þáttum sem hann, eiginkona hans Vilborg Halldórsdóttir og margir helstu tónlistarmenn þjóðarinnar héldu úti kvöldvökunum „Heima með Helga“ í sjónvarpi Símans á laugardagskvöldum á meðan að samkomubann var í gildi á Íslandi.
Hjálmar Sveinsson formaður menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs gerði grein fyrir einhuga vali ráðsins á Helga. Listamanninum var veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og viðurkenningarfé.
Hjálmar sagði Helga vel að titlinum kominn. Hann hefði markað afgerandi spor í íslenskum sviðslistum og dægurmenningu í hartnær 40 ár.
Eftirfarandi texti fylgdi með tilkynningunni um útnefndingu Helga:
„Helgi Björnsson er fæddur á Ísafirði 10. júlí árið 1958. Foreldrar hans eru þau María Gísladóttir fyrrverandi leikskólakennari og Björn Helgason fyrrverandi málarameistari, skíðakappi og landsliðsmaður í fótbolta. Eiginkona Helga er Vilborg Halldórsdóttir leikkona, leikari, leiðsögumaður og textahöfundur með meiru.
Helgi hefur sjálfur sagt að hann var farinn bæði að leika og syngja sem strákur og ákvað 10 ára að hann ætlaði að verða poppstjarna þegar hann yrði stór.
Við útskrift úr Leiklistarskólanum fékk Helgi tvö vinnutilboð: að syngja með hljómsveitinni Grafík og að taka að sér hlutverk Arngríms Árland í kvikmyndinni Atómstöðin. Hann tók báðum tilboðum og þannig hófst hans tvískipti ferill, en allt frá þessu fyrsta sumri hefur hann jöfnum höndum sungið og leikið.
Þó svo að Helgi hafi æ síðan sinnt þessum tveimur „músum“ sínum jöfnum höndum, þá er það sennilega rokkarinn Helgi Björns sem flestir bera sterkar taugar til. Flestir Íslendingar geta raulað með lögum sem hann hefur sungið inn í meðvitund okkar með Grafík, SSSól eða Reiðmönnum vindanna hin síðari ár. Helgi Björnsson er rokkari sinnar kynslóðar, ekki síst vegna öflugrar og litríkrar sviðsframkomu – og svo vegna frasans sem eilíflega verður kenndur við hann: „Eru ekki allir sexý!“
Helgi Björns vann sig svo enn og aftur inn í hjörtu allra landsmanna með Heima-tónleikunum sjö sem sýndir voru beint í sjónvarpi Símans á meðan samkomubannið vegna Covid-19 stóð yfir . Hugmyndina fékk hann þegar hann fylgdist með vinum sínum á Ítalíu sem sungu á svölum og streymdu örtónleikum úr stofunum sínum í útgöngubanni. Öllum viðburðum sem Helgi Björns hefði átt að taka þátt í hafði verið frestað og því fannst honum upplagt að gera eitthvað á þessa leið – búa til tónleika, nokkurs konar sveitaballsstemningu heima í stofu og senda í stofur allra landsmanna, þjóðinni til ómældrar skemmtunar og gleði.“