Helgi Björnsson er borgarlistamaður Reykjavíkur 2020

Maðurinn sem fann upp frasann „Eru ekki allir sexý!“ og söng sig enn á ný inn í hjört landsmanna með Heima-tónleikaröðinni á meðan að samkomubannið stóð yfir, hefur verið útnefndur Borgarlistamaður Reykjavíkur.

helgib.jpg
Auglýsing

Tón­list­ar­mað­ur­inn og leik­ar­inn Helgi Björns­son var í dag útnefndur borg­ar­lista­maður Reykja­víkur af Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóri við hátíð­lega athöfn í Höfða.

Útnefn­ing­in  er heið­ur­svið­ur­kenn­ing til lista­manns sem með list­sköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sér­stök spor í íslensku lista­lífi og sam­fé­lagi. Helgi vakti mikla athygli með þáttum sem hann, eig­in­kona hans Vil­borg Hall­dórs­dóttir og margir helstu tón­list­ar­menn þjóð­ar­innar héldu úti kvöld­vök­unum „Heima með Helga“ í sjón­varpi Sím­ans á laug­ar­dags­kvöldum á meðan að sam­komu­bann var í gildi á Ísland­i. 

Hjálmar Sveins­son for­maður menn­ing­ar-, íþrótta- og tóm­stunda­ráðs gerði grein fyrir ein­huga vali ráðs­ins á Helga. Lista­mann­inum var veittur ágraf­inn steinn, heið­urs­skjal og við­ur­kenn­ing­ar­fé.

Hjálmar sagði Helga vel að titl­inum kom­inn. Hann hefði markað afger­andi spor í íslenskum sviðs­listum og dæg­ur­menn­ingu í hart­nær 40 ár.

Eft­ir­far­andi texti fylgdi með til­kynn­ing­unni um útnefnd­ingu Helga:

„Helgi Björns­son er fæddur á Ísa­firði 10. júlí árið 1958.  For­eldrar hans eru þau María Gísla­dóttir fyrr­ver­andi leik­skóla­kenn­ari og Björn Helga­son fyrr­ver­andi mál­ara­meist­ari, skíða­kappi og lands­liðs­maður í fót­bolta. Eig­in­kona Helga er Vil­borg Hall­dórs­dóttir leik­kona, leik­ari, leið­sögu­maður og texta­höf­undur með meiru.

Helgi hefur sjálfur sagt að hann var far­inn bæði að leika og syngja sem strákur og ákvað 10 ára að hann ætl­aði að verða popp­stjarna þegar hann yrði stór.

Auglýsing
Hann komst inn í leik­list­ar­skól­ann haustið 1979 og útskrif­að­ist þaðan vorið 1983 ásamt Vil­borgu og fleiri lands­þekktum leik­ur­um.

Við útskrift úr Leik­list­ar­skól­anum fékk Helgi tvö vinnu­til­boð: að syngja með hljóm­sveit­inni Grafík og að taka að sér hlut­verk Arn­gríms Árland í kvik­mynd­inni Atóm­stöð­in.  Hann tók báðum til­boðum og þannig hófst hans tví­skipti fer­ill, en allt frá þessu fyrsta sumri hefur hann jöfnum höndum sungið og leik­ið.

Þó svo að Helgi hafi æ síðan sinnt þessum tveimur „mús­um“ sínum jöfnum hönd­um, þá er það senni­lega rokk­ar­inn Helgi Björns sem flestir bera sterkar taugar til. Flestir Íslend­ingar geta raulað með lögum sem hann hefur sungið inn í með­vit­und okkar með Graf­ík, SSSól eða Reið­mönnum vind­anna hin síð­ari ár.  Helgi Björns­son er  rokk­ari sinnar kyn­slóð­ar, ekki síst vegna öfl­ugrar og lit­ríkrar sviðs­fram­komu – og svo vegna fra­s­ans sem eilíf­lega verður kenndur við hann: „Eru ekki allir sexý!“ 

Helgi Björns vann sig svo enn og aftur inn í hjörtu allra lands­manna með Heima-tón­leik­unum sjö sem sýndir voru beint í sjón­varpi Sím­ans á meðan sam­komu­bannið vegna Covid-19 stóð yfir . Hug­mynd­ina fékk hann þegar hann fylgd­ist með vinum sínum á Ítalíu sem sungu á svölum og streymdu örtón­leikum úr stof­unum sínum í útgöngu­banni. Öllum við­burðum sem Helgi Björns hefði átt að taka þátt í hafði verið frestað og því fannst honum upp­lagt að gera eitt­hvað á þessa leið – búa til tón­leika, nokk­urs konar sveita­balls­stemn­ingu heima í stofu og senda í stofur allra lands­manna, þjóð­inni til ómældrar skemmt­unar og gleð­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent