Fyrsta innanlandssmitið frá því um miðjan maí

Tvö tilfelli af COVID-19 staðfest á tveimur dögum og áætlað að yfir 200 manns þurfi að fara í sóttkví. Málið er meðhöndlað sem hugsanleg hópsýking á höfuðborgarsvæðinu.

Kórónuveira Mynd: Landspítali/Þorkell Þorkelsson
Auglýsing

Tvö til­felli hafa nú verið stað­fest inn­an­lands af COVID-19, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Almanna­vörn­um. Annað þeirra er upp­runnið erlendis og greind­ist í gær en hitt var greint í morgun og er þar um að ræða inn­an­lands­smit. 

Það er í fyrsta sinn sem slíkt smit, sem verður innan landamæra Íslands, er greint frá því um miðjan maí­mán­uð.

Almanna­varnir segja að áætlað sé að yfir 200 manns þurfi að fara í sótt­kví vegna smit­anna. Unnið er að smitrakn­ingu og er málið með­höndlað sem hugs­an­leg hóp­sýk­ing á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Auglýsing
Í til­kynn­ingu Almanna­varna segir að unnið sé sam­kvæmt sams konar verk­lagi og gert var þegar hóp­sýk­ingar áttu sér stað í Vest­manna­eyj­um, Bol­ung­ar­vík og á Hvamms­tanga. „Í und­ir­bún­ingi er skimun á mjög stórum hópi fólks sem teng­ist mál­inu í sam­starfi við heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Íslenska erfða­grein­ing­u.“

Í gær var sagt frá því að íslensk knatt­spyrnu­kona, sem leikur með Breiða­blik í efstu deild, hefði greinst með jákvætt sýni í COVID-19 sýna­töku. Hún kom til lands­ins 17. júní  og reynd­ist sýna­taka á landa­mærum nei­kvæð. Síðar kom í ljós að hún hafði verið í nánd við smit­aðan ein­stak­ling erlendis og fór því aftur í sýna­töku. Sú sýna­taka reynd­ist jákvæð. 

Í til­kynn­ingu frá Almanna­vörnum sem birt var í gær sagði að knatt­spyrnu­konun væri sem stendur ein­kenna­laus. „Allir sem hafa verið útsettir fyrir smiti í sam­skiptum við hana síð­ast­liðna tvo sól­ar­hringa þurfa að fara í sótt­kví í 14 daga. Smitrakn­ing er í gangi en ljóst er að margir þurfa að fara í sótt­kví.“

RÚV greindi frá því í gær­kvöldi að allir leik­menn Breiða­bliks og þjálf­arateymi liðs­ins verða í sótt­kví í 14 daga. Breiða­blik mætti KR í deild­inni í vik­unni og leik­manna­hópur KR mun einnig fara í sótt­kví. Frek­ari smitrakn­ing er í gang­i. 

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) greindi frá því í dag að alls fimm leikjum hafi verið frestað vegna máls­ins. Þeir eru: 

30. júní kl. 19.15 Þróttur R – Breiða­blik

1. júlí kl. 19.15 KR – FH



6. júlí kl. 18.00 Breiða­blik – Þór/KA

6. júlí kl. 19.15 Sel­foss - KR

26. júní kl. 19:15 Augna­blik - Völs­ungur

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent