Efling krefst þess að félagsmálaráðherra og ríkisstjórnin efni tafarlaust loforð um hertar aðgerðir gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði, þar með talið loforð um sektarheimildir vegna kjarasamningsbrota og önnur viðurlög. Þetta kemur fram í tilkynningu stéttarfélagsins vegna brunans á Bræðraborgarstíg í síðustu viku.
Efling krefst þess enn fremur að allar stofnanir hins opinbera sem fara með eftirlit varðandi öryggi og heilsu borgaranna sýni tilætlaða árvekni og taki eðlilegt frumkvæði að íhlutun þegar við á, en sýni ekki af sér vanrækslu og sinnuleysi þegar láglaunafólk eða fólk af erlendum uppruna á í hlut.
Efling krefst þess að borin sé eðlileg virðing fyrir lífi, heilsu og öryggi alls verkafólks og að bundinn verði endir á kerfisbundna mismunun gegn verkafólki af erlendum uppruna.
Í tilkynningunni sendir stéttarfélagið dýpstu samúðarkveðjur til aðstandenda þeirra sem létu lífið í brunanum á Bræðraborgarstíg 1 þann 25. júní síðastliðinn. Jafnframt sendir félagið bataóskir til þeirra sem urðu fyrir tjóni og áfalli vegna brunans.
„Staðfest er að tvö af þeim þremur sem létust í brunanum voru félagsmenn í Eflingu, verkafólk af erlendum uppruna sem komu hingað til lands til að vinna verkamannastörf. Hingað komin lentu þau í gildru einstaklings sem leigði þeim hættulegt húsnæði í óboðlegu umhverfi.
Niðurstöðu úr rannsókn lögreglu er beðið, en Efling getur þó ekki annað en sett brunann í samhengi við þá meðferð sem aðflutt vinnuafl verður fyrir á Íslandi. Enginn skortur hefur verið á ábendingum um lögleysu og vanrækslu þegar kemur að stöðu erlends verkafólks á Íslandi. Á það bæði við réttindi á vinnumarkaði og húsnæðisaðbúnað,“ segir í tilkynningunni.
Setti óeðlilegt samspil húsaleigukjara og ráðningarsambands á dagskrá í kjaraviðræðum við SA
Þá er bent á að skrifað hafi verið ítarlega um ástand eignarinnar á Bræðraborgarstíg í Stundinni fyrir fimm árum síðan. Stundin fjallaði einnig um búsetu fjölda fólks, þar á meðal barna, í iðnaðarhúsnæði í janúar 2019. Kveikur á RÚV fjallaði um líf fátækra, m.a. í iðnaðarhúsnæði, í mars 2020. Kveikur fjallaði þar áður um brot gegn réttindum erlends verkafólks sem þrífast undir hatti starfsmannaleiga í október 2018.
„Efling setti óeðlilegt samspil húsaleigukjara og ráðningarsambands á dagskrá í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins veturinn 2018-2019. Auk þess var sett fram skýr krafa um stórhertar refsi- og sektarheimildir gegn kjarasamningsbrotum. Lendingin varð sú að ríkisstjórnin setti fram mörg loforð um úrbætur á vinnumarkaðslöggjöfinni og hert viðurlög í skjalinu „Stuðningur stjórnvalda við lífskjarasamninga“. Efndir á þessum loforðum hafa enn ekki sést og samkvæmt upplýsingum Eflingar frá ASÍ standa Samtök atvinnulífsins einörð gegn þeim,“ segir í tilkynningunni.
Efling minnir jafnframt á að öll þjónusta félagsins standi fórnarlömbum brunans sem eru í Eflingu opin.
Verður að hafa raunverulegar afleiðingar
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist harmi lostin. „Í starfi mínu síðustu tvö ár hef ég á hverjum einasta degi heyrt um launaþjófnað, arðrán, misbeitingu, rugl og ógeð. „Besti vinnumarkaður í heimi“ er ekkert nema martröð fyrir mörg af okkar aðfluttu félögum.
Ég krefst þess að við hættum að þola skeytingarleysi þeirra sem völdin hafa yfir lífsskilyrðum félaga okkar sem þurfa mest af öllum á því að gengið verði í að bæta þeirra kjör og aðstæður. Hinn hræðilegi harmleikur verður að hafa raunverulegar afleiðingar. Ég hef engin orð til að lýsa Íslandi ef að það gerist ekki,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.