Sigmundur Davíð: Góð staða getur hratt breyst til hins verra

Formaður Miðflokksins segir að Íslendingar gangi nú í gegnum mjög krítíska tíma. „Ákvarðanir skipta alltaf máli en þær skipta óvenjulega miklu máli núna.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, seg­ist vera mjög bjart­sýnn á fram­tíð íslensks sam­fé­lags og miklu bjart­sýnni en hann var fyrir ekki svo löngu. „Ég hafði veru­legar áhyggjur af því hvert stefndi fyrir nokkrum vikum síð­an. Nú er ég miklu bjart­sýnni en allt veltur á því að ákvarð­ana­takan verði í lagi því að ég hef tekið eftir því, þrátt fyrir allt þetta í sam­bandi við kerfið og að aðrir stjórni en stjórn­mála­menn, að þegar stjórn­mála­menn koma með stefnu og fylgja henni eftir þá er hægt að gera mjög stórar breyt­ingar sem skipta máli. Þess vegna er nið­ur­staðan hjá mér í bili að ef við fylgjum skyn­sam­legri stefnu hér sé fram­tíðin mjög björt á Ísland­i.“

Þetta kemur fram í ítar­legu við­tali Kjarn­ans við Sig­mund Davíð sem birt­ist um helg­ina en rætt var við alla for­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna um hvernig þeir sæju fyrir sér fram­tíð íslensks sam­fé­lags og efna­hags­lífs.

Hann segir jafn­framt að auð­vitað verði alltaf gerð ein­hver mis­tök en ef menn gera of mörg mis­tök við stjórn lands­ins eða eft­ir­láta ein­hverjum öðrum en almenn­ingi að stjórna þá geti hlut­irnir farið mjög illa og góð staða hratt breyst til hins verra.

Þannig séu Íslend­ingar á mjög krítískum tíma. „Ákvarð­anir skipta alltaf máli en þær skipta óvenju­lega miklu máli nún­a.“

Auglýsing

Kjós­andi þarf að geta valið milli ólíkra stefna

Sig­mundur Davíð endar á því að segja að hann sé mik­ill lýð­ræð­is­sinni. „Ef maður trúir því raun­veru­lega að almenn­ingur sé best til þess fall­inn að taka ákvarð­anir um eigin fram­tíð og hvernig land­inu sé stjórnað þá þarf að vera beint sam­band þarna á milli. Þú þarft, í kosn­ing­um, að finna að það skipti ein­hverju máli hvernig atkvæði þínu er varið og þú þarft að hafa val um ólíka stefnu en ekki ein­hverja ólíka karakt­era sem kom­ast í gegnum kjör­tíma­bilið án þess að verða of umdeild­ir,“ segir hann.

„Þá lendir þú í því að við þarna hinum meg­in,“ segir hann og bendir á Alþing­is­hús­ið, „séum stöðugt með skít­kast út í hvort annað í stað­inn fyrir að deila um grund­vall­ar­at­riði og kjós­endur geti síðan valið á milli.“

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent