Stuðningur við ríkisstjórnina dregst saman

Ríkisstjórnarflokkarnir mælast samanlagt með 6,7 prósentustigum minna fylgi en í síðustu kosningum og myndu ekki fá meirihluta atkvæða ef kosið yrði í dag. Þrír flokkar í stjórnarandstöðu mælast yfir kjörfylgi en tveir undir.

Stuðningur við ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók kipp upp á við eftir að COVID-19 faraldurinn skall á Ísland .Hann hefur hins vegar dalað á ný í síðustu könnunum.
Stuðningur við ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók kipp upp á við eftir að COVID-19 faraldurinn skall á Ísland .Hann hefur hins vegar dalað á ný í síðustu könnunum.
Auglýsing

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur lækkar um þrjú pró­sentu­stig milli kann­anna Gallup og mælist nú 56,8 pró­sent. Hann mæld­ist 61,3 pró­sent í könnun fyr­ir­tæk­is­ins sem gerð var í apr­íl, þegar aðgerðir vegna COVID-19 far­ald­urs­ins stóðu sem hæst, og hafði þá ekki mælst svo hár frá því að hveiti­brauðs­dögum rík­is­stjórn­ar­innar lauk, eða í febr­úar 2018. 

Litlar breyt­ingar eru á fylgi ein­stakra flokka milli kann­ana Gallup. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sem fyrr stærsti flokkur lands­ins með 24 pró­sent fylgi. Hann mælist því enn undir kjör­fylgi, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 25,3 pró­sent þegar talið var upp úr kjör­köss­unum haustið 2017.

Hinir rík­is­stjórn­ar­flokk­arn­ir, Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokk­ur, eru líka tölu­vert undir kjör­fylgi. Vinstri græn myndu fá 13,6 pró­sent ef kosið yrði í dag, um fimmt­ungi minna fylgi en í síð­ustu kosn­ing­um, og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með stuðn­ing 8,6 pró­sent lands­manna, sem yrði það lægsta sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni fengið ef um væri að ræða nið­ur­stöðu kosn­inga. 

Auglýsing
Samanlagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er 46,2 pró­sent eða 6,7 pró­sentu­stigum minna en þeir fengu saman haustið 2017.

Þrír and­stöðu­flokkar yfir kjör­fylgi

Sam­fylk­ingin yrði næst stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag með 14,9 pró­sent fylgi, sem er mjög sam­bæri­legt og flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast með í und­an­förnum könn­unum Gallup. 

Píratar mæl­ast með 10,7 pró­sent fylgi og Við­reisn með 10,5 pró­sent. Allir þessir þrír flokkar myndu fá meira upp úr kjör­köss­unum ef kosið yrði nú en í októ­ber­lok 2017. Þá fengu þeir 28 pró­sent atkvæða sam­an­lagt en nú mæl­ast þeir með 36,1 pró­sent stuðn­ing og hafa bætt við sig 8,1 pró­sentu­stig­i. 

Mið­flokk­ur­inn er ekki langt frá kjör­fylgi sínu – hann fékk 10,9 pró­sent atkvæða 2017 – um þessar mundir en 10,2 pró­sent lands­manna segj­ast styðja flokk­inn. 

Flokkur fólks­ins virð­ist þó ólík­legur til að ná inn á þing eins og sakir standa því að hann mælist með ein­ungis 3,6 pró­sent fylgi. Það er minna en Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem nýtur stuðn­ings 3,8 pró­sent lands­manna. 

Alls nefndu tæp 80 pró­sent aðspurðra í könn­un­inni flokk sem þeir myndu kjósa. Um tíu pró­sent sögð­ust ætla að skila auða eða ekki kjósa og önnur tíu pró­sent tóku ekki afstöðu eða neit­uðu að svara. 

Könn­unin var net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 2. til 30. júní 2020. Heild­ar­úr­taks­stærð var 10.274 og þátt­töku­hlut­fall var 51,7 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent