Sóttvarnalæknir hefur lagt til við heilbrigðisráðherra að breyta reglum um skimun á landamærum vegna COVID-19. Breytingin snýr eingöngu að íslenskum ríkisborgurum og þeim sem eru búsettir hér á landi. Sem fyrr verður hægt að velja á milli 14 daga sóttkvíar eða skimunar á landamærum en gert er ráð fyrir að einstaklingar úr fyrrnefndum hópi sem velja skimun þurfi að fara aftur í skimun 4 – 5 dögum eftir komuna til landsins og vera í sóttkví þar til niðurstaða seinni sýnatökunnar liggur fyrir. Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis þessa efnis og er stefnt að því að breytingin komi til framkvæmda eigi síðar en 13. júlí.
Í minnisblaði sóttvarnalæknis, sem liggur til grundvallar ákvörðun ráðherra, kemur fram að reynslan af skimun á landamærum hafi leitt í ljós hættu á því að einstaklingar sem hafa smitast nýlega beri með sér smit sem greinist ekki við landamæraskimun en komi fram síðar. Sóttvarnalæknir telur að tilvik sem þessi skapi hættu á hópsmitum og þá sérstaklega þegar í hlut eiga einstaklingar með útbreitt tengslanet hér á landi. Þess vegna leggur hann til að breyttar reglur um skimun taki ekki til almennra ferðamanna heldur verði bundnar við íslenska ríkisborgara og aðra sem eru búsettir hér á landi.
Undirbúningur að breyttu fyrirkomulagi er þegar hafinn. Breyting á reglum um sóttkví og einangrun vegna COVID-19 í samræmi við þetta er í undirbúningi og verður send Stjórnartíðindum til birtingar innan skamms.
Fyrir liggur að þeir sem þurfa að fara í tvær sýnatökur samkvæmt fyrirhugaðri breytingu á reglum um sýnatöku á landamærum þurfa ekki að greiða fyrir seinni sýnatökuna.
Samkomur miðist áfram við 500 manns
Þá hefur heilbrigðisráðherra einnig ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja auglýsingu um takmörkun á samkomum óbreytta um þrjár vikur, þ.e. til 26. júlí. Fjöldatakmörk á samkomum miðast því áfram við 500 manns. Opnunartími spilasala og veitingastaða með vínveitingaleyfi verður einnig óbreyttur og heimilt að hafa opið til 23.00 á kvöldin. Upplýsingagjöf til almennings um einstaklingsbundnar sýkingavarnir verður efld.
Ákveðið bakslag
Frá því að skimanir hófust á landamærum 15. júní síðastliðinn hafi um 22.000 ferðamenn komið til landsins og sýni verið tekin hjá um 16.000 manns. Virk smit hafa greinst hjá sjö einstaklingum og rúmlega 400 manns hafa þurft að fara í sóttkví eftir smitrakningu. Enginn er alvarlega veikur.
Sóttvarnalæknir segir um ákveðið bakslag að ræða sem hafi ekki verið óviðbúið en að lágmarka þurfi áhættuna á því að faraldurinn nái sér á strik hér á landi. Tillaga sóttvarnalæknis um að ekki verði slakað frekar á reglum um samkomubann að sinni byggist á þessu, auk þess sem hann leggur áherslu á að efla fræðslu um einstaklingsbundnar sýkingavarnir.