Hrina hópuppsagna í tengslum við COVID-19 faraldurinn virðist gengin niður

Stærst þeirra þriggja hópuppsagna sem áttu sér stað í júní er uppsögn PCC á Bakka sem sagði upp nálægt 85 manns af þeim tæplega 150 manns sem starfa hjá fyrirtækinu.

1. maí 2019 - Hópur af fólki
Auglýsing

Þrjár til­kynn­ingar um hóp­upp­sagnir bár­ust Vinnu­mála­stofnun í júní þar sem sagt var upp 147 manns. Sú hrina hóp­upp­sagna sem hófst í mars tengt COVID-19 far­aldr­inum virð­ist þar með hafa gengið nið­ur, en alls hefur um 7.400 manns verið sagt upp í hóp­upp­sögnum síð­ustu mán­uði hjá um 110 fyr­ir­tækj­um.

Þetta kemur fram í skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um hóp­upp­sagnir í júní.

Stærst þess­ara þriggja hóp­upp­sagna nú í júní er upp­sögn PCC á Bakka sem sagði upp nálægt 85 manns af þeim tæp­lega 150 manns sem starfa hjá fyr­ir­tæk­inu. Þá sögðu tvö fyr­ir­tæki á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tengd listum og ferða­þjón­ustu upp 31 starfs­manni hvort, að því er fram kemur hjá stofn­un­inni.

Auglýsing

Stærstur hluti þeirra sem misst hafa vinn­una í hóp­upp­sögnum á árinu 2020 kemur úr ferða­þjón­ustu­tengdum grein­um; 29 pró­sent úr flug­rekstri, 27 pró­sent úr gisti­þjón­ustu, 5 pró­sent úr veit­inga­rekstri og 28 pró­sent úr öðrum ferða­þjón­ustu­tengdum grein­um, eða sam­tals um 89 pró­sent.

Mynd: Vinnumálastofnun

Sam­kvæmt Vinnu­mála­stofnun er upp­sagn­ar­frestur þeirra sem sagt var upp í hóp­upp­sögnum júní­mán­aðar í flestum til­vikum á bil­inu 1 til 3 mán­uðir og koma því til fram­kvæmda á bil­inu ágúst til októ­ber.

Þær upp­sagnir sem bár­ust í mars til maí komu og koma til fram­kvæmda í maí og fram í sept­em­ber í flestum til­vik­um. Sjá má á með­fylgj­andi mynd að nærri 4.000 manns munu hafa lokið upp­sagn­ar­fresti í byrjun ágúst og um 1.300 að auki í sept­em­ber. Gera verður ráð fyrir að stór hluti þeirra muni sækja um atvinnu­leys­is- bætur þegar þar að kem­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent