Tvö tilvik þar sem lögreglumenn þurftu að fara í sóttkví en fengu ekki greitt

BSRB telur með öllu óásættanlegt að framlínufólki eins og lögreglumönnum sé ekki bættur sá frítími sem þeir neyðast til að eyða í sóttkví vegna þess að þeir hafa orðið útsettir fyrir smiti af lífshættulegum sjúkdómi í störfum sínum.

Lögreglan 1. maí 2019
Auglýsing

BSRB hefur sent öllum lög­reglu­stjórum á land­inu bréf þar sem farið er fram á að lög­reglu­menn sem þurfa að fara í sótt­kví vegna gruns um COVID-19 smit verði greitt fyrir þann tíma sem þeir þurfa að vera í sótt­kví og vakta­frí frest­ist þar til þeir eru lausir úr henni.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá BSRB í dag. 

Sam­kvæmt banda­lag­inu hafa komið upp tvö til­vik þar sem lög­reglu­menn þurftu að fara í sótt­kví vegna afskipta af ein­stak­lingum sem grunur lék á að væru með COVID-19 smit. Í báðum til­vikum hafi það verið afstaða yfir­manna þeirra að þeir ættu ekki rétt til greiðslna á meðan þeir dvöldu í sótt­kví, fjarri heim­ili og fjöl­skyld­um, né fengu þeir auk­inn frí­töku­rétt vegna vakta­frí­daga sem þeir áttu að fá á meðan þeir voru í sótt­kvínni.

Auglýsing

„Lög­reglu­menn eru fram­línu­fólk í öllum skiln­ingi þess orðs. Þeir mæta almennt fyrstir á vett­vang og hafa ekki val um það hvort þeir sinni útkalli þegar eftir þjón­ustu þeirra er leit­að. Þeir eru oftar en ekki ómeð­vit­aðir um það hvað bíður þeirra og eru ber­skjald­aðir gagn­vart utan­að­kom­andi ógn eins og smit­sjúk­dóm­um,“ segir meðal ann­ars í bréfi BSRB til lög­reglu­stjór­anna.

Banda­lagið telur með öllu óásætt­an­legt að fram­línu­fólki eins og lög­reglu­mönnum sé ekki bættur sá frí­tími sem þeir neyð­ast til að eyða í sótt­kví vegna þess að þeir hafa orðið útsettir fyrir smiti af lífs­hættu­legum sjúk­dómi í störfum sín­um.

BSRB gerir þá kröfu að lög­reglu­menn fái greiddar yfir­vinnu­stundir fyrir þann tíma sem þeir verja í sótt­kví utan skil­greindra vakta. Það sé eðli­legt end­ur­gjald fyrir þá áhættu sem þeir taka í sínum störfum og þá stað­reynd að þeir glata dýr­mætum frí­tíma af þeim sök­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent