Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra var falið á nýliðnu þingi að útfæra með reglugerð fyrirkomulag við úthlutun 400 milljóna króna sérstaks rekstrarstuðnings við einkarekna fjölmiðla til að mæta efnahagslegum áhrifum COVID-19. Reglugerðin liggur nú fyrir, hún hefur verið kynnt ríkisstjórn og birt á vef Stjórnartíðinda. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins í dag.
Reglugerðin er sett til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónaveiru sem samþykkt voru á Alþingi þann 11. maí. Þar er tilgreint að við ákvörðun um fjárhæð stuðnings verði litið til launa, fjölda starfsmanna og verktakagreiðsla vegna miðlunar á fréttum og fréttatengdu efni á ritstjórnum árið 2019, ásamt útgáfutíðni miðilsins og fjölbreytileika.
Stuðningurinn verður að hámarki 25 prósent af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjenda en stuðningur til hvers umsækjenda getur ekki orðið hærri en sem nemur 25 prósent af þeirri fjárveitingu sem Alþingi hefur úthlutað til sérstaks rekstrarstuðnings. Umsóknir skulu afgreiddar fyrir 1. september 2020.
Samkvæmt mennta- og menningarmálaráðuneytinu fellur beinn launakostnaður umsækjanda til blaða- og fréttamanna, ritstjóra og aðstoðarritstjóra, myndatökumanna og ljósmyndara á árinu 2019 vegna miðlunar á fréttum og fréttatengdu efni og beinar verktakagreiðslur til sambærilegra aðila undir stuðningshæfan rekstrarkostnað. Fari svo að heildarfjárhæð samþykktra umsókna um stuðningshæfan rekstrarkostnað verði umfram fjárveitingar Alþingis skerðist stuðningurinn til allra umsækjenda í jöfnum hlutföllum.
Meðal skilyrða fyrir sérstökum rekstrarstuðningi eru:
- Fjölmiðill skal vera skráður eða hafa leyfi til hljóð- eða myndmiðlunar
- Efni sem birtist í fjölmiðli skal vera fjölbreytt og ætlað fyrir almenning á Íslandi. Staðbundnir fjölmiðar eru undanþegnir þessu skilyrði.
- Fjölmiðill skal hafa starfað með leyfi frá fjölmiðlanefnd, hafa staðið skil á árlegri skýrslugjöf til hennar og veitt nefndinni fullnægjandi gögn og upplýsingar um eignarhald sitt, þar með talin gögn um raunverulega eigendur.
- Fjölmiðill skal ekki vera í vanskilum með opinber gjöld, skatta og skattsektir.
Umsjón með umsóknarferli og mat á umsóknum verður á höndum fjölmiðlanefndar og mun hún skila tillögum um úthlutun stuðningsins til ráðherra. Nánari upplýsingar verður að finna á vef fjölmiðlanefndar á næstu dögum, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.
Kjarninn er einn þeirra fjölmiðla sem uppfyllir þau skilyrði sem sett eru fyrir stuðningsgreiðslum.