Hundrað sjötíu og eitt fyrirtæki hefur sótt um grunnlán fyrir allt að 10 milljónir króna með 100 prósent ríkisábyrgð en umsókn um stuðningslán var virkjuð á ísland.is þann 9. júlí síðastliðinn.
Þar af hafa 56 fyrirtæki til viðbótar sótt um aukastuðningslán, allt að 40 milljónir króna með 85 prósent ríkisábyrgð. Samtals gera þetta 227 lán fyrir tæpa 2,2 milljarða, eða 2.176.000.000.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem birt var á vef Stjórnarráðsins í dag.
Stuðningslán eru hluti af viðspyrnuaðgerðum stjórnvalda og er ætlað að styðja við smærri og meðalstór fyrirtæki sem orðið hafa fyrir miklu tekjufalli, samkvæmt ráðuneytinu.
Ýmis skilyrði eru sett fyrir veitingu stuðningsláns. Til að mynda þurfa tekjur lántaka að hafa dregist saman um að minnsta kosti 40 prósent á samfelldu 60 daga tímabili frá 1. mars til 30. september miðað við sama tímabil í fyrra. Þá þurfa lántakar að hafa haft tekjur á bilinu níu til 1.200 milljónir á síðasta rekstrarári. Þá þarf launakostnaður á síðasta ári að hafa numið tíu prósentum af rekstrarkostnaði.
Lántakandi stuðningsláns má ekki hafa greitt út arð eða óumsamda kaupauka, keypt eigin hlutabréf, greitt af víkjandi láni eða veitt nákomnum aðilum lán frá 1. mars 2020. Þá mega lántakendur ekki vera í vanskilum við lánastofnun sem hafa staðið lengur í 90 daga né í vanskilum með opinber gjöld.
Tekið er á móti umsóknum um stuðningslán á Ísland.is en stjórnvöld hafa samið við Arion banka, Íslandsbanka, Kviku, Landsbankann og Sparisjóðina um framkvæmd lánanna. Fyrirtæki fá því lán afgreidd hjá sínum viðskiptabanka.