227 stuðningslán fyrir tæpa 2,2 milljarða

Alls hafa fyrirtæki hér á landi sótt um 227 stuðningslán fyrir tæpa 2,2 milljarða króna síðan opnað var fyrir umsóknir þann 9. júlí.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Auglýsing

Hund­rað sjö­tíu og eitt fyr­ir­tæki hefur sótt um grunn­lán fyrir allt að 10 millj­ónir króna með 100 pró­sent rík­is­á­byrgð en umsókn um stuðn­ings­lán var virkjuð á ísland.is þann 9. júlí síð­ast­lið­inn. 

Þar af hafa 56 fyr­ir­tæki til við­bótar sótt um auka­stuðn­ings­lán, allt að 40 millj­ónir króna með 85 pró­sent rík­is­á­byrgð. Sam­tals gera þetta 227 lán fyrir tæpa 2,2 millj­arða, eða 2.176.000.000.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu sem birt var á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Auglýsing

Stuðn­ings­lán eru hluti af við­spyrnu­að­gerðum stjórn­valda og er ætlað að styðja við smærri og með­al­stór fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir miklu tekju­falli, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu.

Ýmis skil­yrði eru sett fyrir veit­ingu stuðn­­ings­láns. Til að mynda þurfa tekjur lán­­taka að hafa dreg­ist saman um að minnsta kosti 40 pró­­sent á sam­­felldu 60 daga tíma­bili frá 1. mars til 30. sept­­em­ber miðað við sama tíma­bil í fyrra. Þá þurfa lán­takar að hafa haft tekjur á bil­inu níu til 1.200 millj­­ónir á síð­­asta rekstr­­ar­ári. Þá þarf launa­­kostn­aður á síð­­asta ári að hafa numið tíu pró­­sentum af rekstr­­ar­­kostn­að­i.

Lán­tak­andi stuðn­­ings­láns má ekki hafa greitt út arð eða óum­­samda kaupauka, keypt eigin hluta­bréf, greitt af víkj­andi láni eða veitt nákomnum aðilum lán frá 1. mars 2020. Þá mega lán­tak­endur ekki vera í van­skilum við lána­­stofnun sem hafa staðið lengur í 90 daga né í van­skilum með opin­ber gjöld.

Tekið er á móti umsóknum um stuðn­ings­lán á Ísland.is en stjórn­völd hafa samið við Arion banka, Íslands­banka, Kviku, Lands­bank­ann og Spari­sjóð­ina um fram­kvæmd lán­anna. Fyr­ir­tæki fá því lán afgreidd hjá sínum við­skipta­banka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent