Sæmundur Sæmundsson hættir sem forstjóri Borgunar

Forstjóri Borgunar hefur ákveðið að láta af störfum.

borgun hús
Auglýsing

Sæmundur Sæmunds­son hefur ákveðið að láta af störfum sem for­stjóri Borg­unar en stjórn fyr­ir­tæk­is­ins til­kynnti þetta í dag. Stjórnin til­kynnti einnig að Edu­ardo Pontes og Marcos Nunes taki við en þeir munu sam­eig­in­lega gegna hlut­verki for­stjóra Borg­un­ar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Breyt­ing­arnar verða í kjöl­far þess að Salt Pay hefur nú verið sam­þykkt af fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands sem nýr rekstr­ar­að­ili Borg­un­ar. Líkt og áður hefur verið til­kynnt sam­þykkti Salt Pay að kaupa Borgun fyrr á þessu ári í kjöl­far opins sölu­ferl­is.

Sæmundur segir í til­kynn­ing­unni þetta vera góða tíma­setn­ingu fyrir sig að stíga til hliðar hjá Borg­un. „Ég er ákaf­lega spennt­ur, fyrir hönd starfs­fólks Borg­un­ar, fyrir þessum næsta kafla þar sem ég veit að Salt Pay hyggst sækja fram af krafti á alþjóða­vísu. Ég er stoltur af að hafa leitt fyr­ir­tækið í gegnum mikið breyt­inga­tíma­bil þar sem við náðum því mark­miði að selja fyr­ir­tæk­ið. Ég er sér­stak­lega ánægður að Borgun fái eig­endur sem ætli að byggja á þeim öfl­uga grunni sem teymið okkar hefur byggt upp síð­ustu ár“.

Auglýsing

Nýir for­stjórar Borg­unar verða þeir Edu­ardo Pontes og Marcos Nunes. „Edu starf­aði áður sem for­stjóri brasil­íska fjár­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Stone Co og Marcos starf­aði áður sem fram­kvæmda­stjóri alþjóð­legrar færslu­hirð­ingar og ytri vaxtar hjá sænska greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Bam­bora,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Marcos Nunes segir að fram­tíð­ar­sýn Salt Pay fyrir Borgun sé að ná fram umtals­verðri mark­aðs­hlut­deild á meðal lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja í Evr­ópu. „Við ætlum að byggja upp öfl­ugt félag á Íslandi sem geti orðið stökk­pallur fyrir okkur til að þróa verð­mætar lausnir fyrir sölu­að­ila um alla Evr­ópu. Ekki aðeins í gegnum greiðslu­miðlun heldur einnig með því að hjálpa sölu­að­il­unum að vaxa og ná fram auk­inni skil­virkni í rekstri sín­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent