Vaxtalækkanir hafa margskonar áhrif á íbúðamarkað

Vaxtalækkanir geta haft margskonar áhrif á íbúðamarkað, að sögn hagfræðings í Hagfræðideild Landsbankans. Þær geta lækkað greiðslubyrði og bætt fjárhagsstöðu heimilanna til skemmri tíma, en aftur á móti hækkað húsnæðisverð til lengri tíma litið.

Una Jónsdóttir
Una Jónsdóttir
Auglýsing

Áhrif vaxta­lækk­ana hafa gert vart við sig á íbúða­mark­aði en vextir á íbúða­lánum hafa víð­ast hvar lækkað og eru orðnir mjög lágir, sögu­lega séð. Þetta hefur það í för með sér að greiðslu­byrði af lánum lækkar og þar með aukast ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­ila. Lægri vextir geta einnig aukið svig­rúm fólks til fast­eigna­kaupa, þar sem hægt er að taka hærra lán en ella án þess að greiðslu­byrði auk­ist.

Þetta skrifar Una Jóns­dótt­ir, hag­fræð­ingur í Hag­fræði­deild Lands­bank­ans, í grein­inni „Íbúða­mark­aður á tímum heims­far­ald­urs – Vaxta­lækk­anir og nokkuð óvænt hækkun íbúða­verðs“ sem birtist í nýj­ustu Vís­bend­ing­u. 

Hún segir að slíkt geti skapað þrýst­ing til hækk­unar hús­næð­is­verðs. Vaxta­lækk­anir geti því haft margs­konar áhrif á íbúða­mark­að. Lækkað greiðslu­byrði og bætt fjár­hags­stöðu heim­il­anna til skemmri tíma, en aftur á móti hækkað hús­næð­is­verð til lengri tíma lit­ið.

Auglýsing

„Gera hefði mátt ráð fyrir því að aukið atvinnu­leysi, versn­andi efna­hags­horfur og almenn óvissa myndi draga úr við­skiptum með íbúð­ar­hús­næði og verð­hækk­anir yrðu litlar sem engar út þetta ár. Nýj­ustu tölur frá maí­mán­uði bera þess hins vegar merki að íbúða­mark­aður sé nokkuð líf­leg­ur. Verð hækk­aði um 0,8 pró­sent milli mán­aða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem er mesta hækkun milli mán­aða síðan í nóv­em­ber 2018. Í apríl stóð verð hins vegar í stað og í mars var hækk­unin aðeins 0,1 pró­sent frá fyrri mán­uð­i. 

Gera má ráð fyrir því að vaxta­lækk­anir hafi ýtt undir eft­ir­spurn og komið í veg fyrir það að mark­að­ur­inn færi í algjört frost með litlum sem engum hreyf­ingum á nafn­verði milli mán­aða og auknum líkum á raun­verðs­lækk­un­um,“ skrifar hún. 

Una segir að ef litið sé til breyt­inga á hús­næð­isliðnum í mæl­ingum Hag­stof­unnar á vísi­tölu neyslu­verðs sjá­ist áhrif vaxta­breyt­inga glögg­lega. „Í júní hækk­aði hús­næð­islið­ur­inn reiknuð húsa­leiga, sem end­ur­speglar útgjöld hús­næð­is­eig­enda, um 0,37 pró­sent milli mán­aða. Vísi­tala mark­aðs­verðs hús­næð­is, sem fangar breyt­ingar á hús­næð­is­verði, hækk­aði hins vegar um 0,89% milli mán­aða. Mis­mun­ur­inn skýrist af lægri vöxt­um, sem vógu 0,52 pró­sentu­stigum til lækk­unar í júní. Haldi verð­hækk­anir áfram á hús­næð­is­mark­aði munu áhrifin af vaxta­lækk­un­um, að óbreyttu, vega minna og verð­bólga gæti orðið meiri. Fylgj­ast þarf því vel með þess­ari þróun á næstu mán­uðum og er við­búið að frek­ari hækk­anir íbúða­verðs kunna að hafa áhrif á verð­bólgu sem aftur dregur úr líkum á áfram­hald­andi vaxta­lækk­un­um.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent