Stjórn og trúnaðarráð Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) fordæmir óvænt og einhliða viðræðuslit Icelandair sem birt voru í fjölmiðlum í dag. Afstaða Icelandair setur FFÍ í þá afleitu stöðu að þurfa að hefja undirbúning að tafarlausum og víðtækum verkfallsaðgerðum. FFÍ er aðili að Alþýðusambandi Íslands og alþjóðlegum verkalýðssamtökum og hefur fullan stuðning við aðgerðir sínar þar. Samstöðuaflinu verður beitt af fullum þunga.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Flugfreyjufélagi Íslands sem send var út í rétt í þessu.
„Það eru gríðarleg vonbrigði að Icelandair kalli eftir því að flugmenn gangi í störf félagsmanna FFÍ og ég neita að trúa því fyrr en ég tek á því að vinnufélagar okkar muni koma þannig fram við samstarfsfélaga sína um árabil. Afstaða og viðhorf Icelandair í málinu eru til skammar og ég hef trú á að almenningur taki slíkri lítilsvirðingu við launfólk ekki þegjandi og hljóðalaust,“ segir Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands.
Vænta þess að málið verði tekið fyrir á vettvangi stjórnvalda
Þá kemur fram að Icelandair hafi á undanförnum mánuðum þegið háar fjárhæðir úr opinberum sjóðum og FFÍ væntir þess að málið verði tekið fyrir á vettvangi stjórnvalda hið fyrsta og geri þá kröfu til stjórnenda fyrirtækisins að þeir virði lög og leikreglur á íslenskum vinnumarkaði.