N1 hefur keypt rekstur Ísey skyrbar á þjónustustöðvum sínum á Ártúnshöfða, við Hringbraut, Borgartún og í Fossvogi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1, segir í tilkynningunni að vörurnar frá Ísey skyrbar séu afar vinsælar og „við sjáum að þetta er sterkt og vinsælt vörumerki sem viðskiptavinir N1 eru hrifnir af. Við viljum efla þetta merki og þá fjölbreytni sem þar er boðið upp á og við hlökkum til frekari þróunar og nýrra vara, þannig að N1 verði áfram besti viðkomustaðurinn fyrir þá sem eru á ferðinni og vilja fá eitthvað hollt og gott.“
Þá kemur fram að nú sé verið að skoða fleiri staðsetningar á Ísey skyrbar á þjónustustöðvum N1.
Auglýsing