Stígamót sendu átta kynferðisbrotamál til Mannréttindadómstólsins

Átta kynferðisbrotamál sem voru látin niður falla af yfirvöldum hér á landi hafa verið send til Mannréttindadómstólsins. Aðeins brot af slíkum málum rata til dómstóla á Íslandi.

Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta til margra ára.
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta til margra ára.
Auglýsing

Þó að ýmis­legt hafi áunn­ist í kyn­ferð­is­brota­málum hér á landi, ekki síst hvað vit­und almenn­ings um alvar­leika þeirra varð­ar, hefur lítið þok­ast í rétta átt í rétt­ar­kerf­inu að mati Guð­rúnar Jóns­dótt­ur, tals­konu Stíga­móta til margra ára sem lét af störfum nýver­ið.

Auglýsing

Í ítar­legu við­tali við Kjarn­ann um síð­ustu helgi benti Guð­rún á að enn rati aðeins brot af kærðum kyn­ferð­is­brota­málum til dóm­stóla og sak­fell­ing­ar­hlut­fall í nauðg­un­ar­málum er aðeins um 11 pró­sent. Mörg þeirra eru látin niður falla. „Að með­al­tali und­an­farin ár er ennþá hægt að telja dóma sem falla í nauðg­un­ar­málum á hverju ári á fingrum handar einnar konu. Á meðan stór­aukn­ing hefur orðið í fjölda þeirra sem leita til Stíga­móta vegna nauð­gana. Þetta eru tveir heim­ar.“

Og nú er komið að því að sjá hvort að Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn tekur undir með Guð­rúnu og Stíga­mótum um að kerf­is­villa valdi því að ekki er ákært í fleiri málum en raun ber vitni. Lög­fræð­ingi var falið það verk­efni að fara í gegnum slík mál og sendi hann í kjöl­farið átta þeirra áfram til dóm­stóls­ins. Allt eru þetta nýleg mál, „og allt eru þetta mál sem við teljum ekki hafa verið unnin nógu vel af yfir­völdum hérna heima,“ segir Guð­rún.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn tekur aðeins fyrir um tíu pró­sent þeirra mála sem honum ber­ast. Ákvörðun hans varð­andi málin átta liggur ekki enn fyr­ir. „Við getum ekki sætt okkur við – og eigum ekki að sætta okkur við – að rann­sóknir á kyn­ferð­is­brota­málum séu ekki full­nægj­andi á Ísland­i.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent