Rúmlega 217 þúsund manns á íslenskum vinnumarkaði

Samkvæmt nýrri vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar mældist atvinnuleysi 3,5 prósent í júní síðastliðnum sem er mikil lækkun frá fyrri mánuði en þá mældist atvinnuleysi 9,9 prósent.

Miðbær Reykjavíkur – vika í að samkomubanni verði aflétt (25.04.20)
Auglýsing

Sam­kvæmt nýrri vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hag­stof­unnar er áætlað að rúm­lega 217.200 (± 6.200) ein­stak­lingar hafi að jafn­aði verið á vinnu­mark­aði í júní 2020 sem jafn­gildir 83,1 pró­sent (±2,4) atvinnu­þát­töku. Af þeim sem eru á vinnu­mark­aði er áætlað að 209.500 (±4.900) hafi verið starf­andi en 7.700 (± 2.500) án vinnu og í atvinnu­leit. Áætlað hlut­fall atvinnu­lausra var því 3,5 pró­sent (±1,1).



Á vef Hag­stof­unnar segir að mælt atvinnu­leysi í júní hafi lækkað frá fyrri mán­uði þegar það mæld­ist 9,9 pró­sent. Það sé nú svipað því sem var fyrir ári síðan þegar það var 3,2 pró­sent en á milli áranna 2015 og 2018 hafi mælt atvinnu­leysi verið á bil­inu 2,2 til 3,1 pró­sent.



„Sam­kvæmt árs­tíð­ar­leið­réttum tölum var fjöldi atvinnu­lausra í júní 8.300 eða um 4,1% af vinnu­afl­inu. Árs­tíð­ar­leið­rétt atvinnu­þátt­taka var 80,1% og árs­tíð­ar­leið­rétt hlut­fall starf­andi 75,5%. Árs­tíð­ar­leið­rétt atvinnu­þátt­taka jókst um hálft pró­sentu­stig og hlut­fall starf­andi hækk­aði um 2,7 pró­sentu­stig borið saman við maí 2020,“ segir í til­kynn­ingu.

Auglýsing


Sér­stak­lega er tekið fram að árs­tíð­ar­leið­réttar tölur geti verið óná­kvæmar við óvenju­legar aðstæður líkt og nú eru uppi. „Árs­tíð­ar­leið­réttar tölur gera ráð fyrir almennum árs­tíð­ar­bundnum sveiflum á vinnu­mark­aði, til dæmis auknum fjölda atvinnu­lausra að vori þegar náms­menn hefja leit að sum­ar­vinnu, en slíkar leið­rétt­ingar duga skammt þegar óvæntir og ein­stakir atburðir hafa áhrif á atvinnu­stöðu fólks. Því er mik­il­vægt að horfa frekar til óleið­réttra mæl­inga við mat á skamm­tíma­á­hrif­um,“ segir í til­kynn­ingu.



Þá er einnig tekið fram að um bráða­birgða­tölur sé að ræða sem verði end­ur­skoð­aðar þegar árs­fjórð­ungi lýk­ur. Vís­bend­ingar séu um að ein­stak­lingar sem fengu greiddar atvinnu­leys­is­bætur í júní hafi verið ólík­legri til að svara spurn­inga­lista rann­sókn­ar­innar heldur en þeir sem ekki fengu greiddar slíkar bæt­ur. Það kann að hafa leitt til van­mats á atvinnu­leysi í júní­mán­uði.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent