Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis áttu fund í morgun vegna þeirra smita af kórónuveirunni sem greinst hafa á Íslandi frá 8. júlí. Í dag er í heildina 21 með staðfest smit veirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum. 173 eru í sóttkví. Um ellefu aðskilin mál er að ræða og í tveimur þeirra hefur uppruni smits ekki fengist staðfestur. Íslensk erfðagreining hefur raðgreint sýni til þess að finna uppruna smitanna.
Þeir einstaklingar sem eru með staðfest smit hafa sýnt einkenni veirunnar en enginn er alvarlega veikur og enginn er á sjúkrahúsi. Almannavarnir minna á að áríðandi er að þeir sem fara í sýnatöku haldi sig heima þar til neikvæð niðurstaða hefur borist.
Með aðgerðum almannavarna, embættis landlæknis og stjórnvalda hefur hingað til náðst góður árangur í að hefta útbreiðslu COVID-19 hér á landi.
Almannavarnir brýna fyrir fólki að halda áfram einstaklingsbundnum sóttvörnum og er góður handþvottur og sótthreinsun lykilatriði í því sambandi.
Helstu einkenni Covid-19 sýkingar minna á venjulega flensu;
• Hiti
• Hósti
• Bein- og vöðvaverkir
• Þreyta
• Meltingareinkenni (kviðverkir, ógleði/uppköst, niðurgangur) eru ekki mjög áberandi með COVID-19 en eru þó þekkt.
• Breytingu, eða tapi á bragð- og lyktarskyni er lýst hjá 20–30 prósent sjúklinga.
Sýni einstaklingur einkenni eða vakni grunur um smit í nærumhverfi skal hinn sami halda sig heima, hafa samband við sína heilsugæslu eða í gegnum netspjall á heilsuvera.is og óska eftir sýnatöku. Einnig er hægt að hafa samband við Læknavaktina í síma 1700.
Komi upp smit er smitrakning lykilatriði til þess að kanna mögulega útbreiðslu. Því minna almannavarnir og landlæknir á mikilvægi þess að fólk sæki Rakning C-19 appið í síma sína. Slíkt getur auðveldað smitrakningu.
Mikilvægar upplýsingar um Covid-19 má finna á vefsíðunni www.covid.is