Ný siglingaleið skapi aukin tækifæri í Þorlákshöfn

Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi greinir frá því á vef sínum að Smyril Line ætli að bæta við sig skipi og hefja fraktsiglingar á milli Noregs og Hollands. Nýtt skip tekur við siglingum á milli Þorlákshafnar og Hirtshals í Danmörku.

Flutningaskipið Mykines við bryggju í Þorlákshöfn.
Flutningaskipið Mykines við bryggju í Þorlákshöfn.
Auglýsing

Fær­eyska skipa­fé­lagið Smyril Line hefur ákveðið að hefja þróun á nýrri sigl­inga­leið á milli Nor­egs og Hollands og mun nýtt skip byrja að sigla til Þor­láks­hafnar í kjöl­far­ið. Frá þessu greinir Elliði Vign­is­son bæj­ar­stjóri í Ölf­usi í færslu á vef sínum.

Áfram munu tvö skip frá Smyril Line hafa viku­lega við­komu í Þor­láks­höfn, en Smyril Line er að bæta við sig skipi í flot­ann til þess að þróa nýju sigl­inga­leið­ina. Það skip heitir Mistral, en núna sigla skipin Mykines og Akra­nes frá Þor­láks­höfn til Rott­er­dam í Hollandi og Hirts­hals í Dan­mörku.

Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi.

Nýja skipið mun sam­kvæmt orðum bæj­ar­stjór­ans taka við sigl­inga­leið­inni á milli Þor­láks­hafnar og Hirts­hals, en Akra­nesið mun sigla nýju sigl­inga­leið­ina á milli vest­ur­strandar Nor­egs og Rott­er­dam. 

Mistral er 153 metra langt og 21 metra breitt og því öllu stærra en Akra­nes­ið.

Býst við frek­ari sókn­ar­skrefum

„Þor­láks­höfn hefur sannað gildi sitt sem lyk­il­höfn Íslands í Evr­ópu­sigl­ing­um. Sigl­ing þaðan syttir enda sigl­inga­tím­ann til og frá Evr­ópu um hátt í sól­ar­hring og munar um minna bæði hvað varðar tíma, fjár­magn og kolefn­is­spor,“ segir bæj­ar­stjór­inn í Ölf­usi, sem hrósar fram­taks­semi Smyril Line í frakt­sigl­ingum um Þor­láks­höfn, sem hófust árið 2017 er Mykinesið lagð­ist í fyrsta sinn að bryggju í Þor­láks­höfn.

Auglýsing

Í upp­hafi þessa árs kom svo Akra­nesið í fyrsta sinn til Þor­láks­hafnar og hóf sigl­ingar til Hirts­hals en nú mun Mistral leysa Akra­nesið af hólmi í þeim sigl­ing­um.

„Ekki þarf að efast um að þessi við­bót mun skapa enn frek­ari tæki­færi fyrir okkur hér í Þor­láks­höfn þar sem sigl­inga­leiðin hér teng­ist nú beint við flutn­inga milli Nor­egs og Rott­er­dam og öfugt. Við erum sann­færð um að enn stærri sóknar skref eru innan seil­ing­ar,“ skrifar bæj­ar­stjór­inn.

Athuga­semd rit­stjórnar: Fréttin hefur verið upp­færð og bæði fyr­ir­sögn hennar og meg­in­máli breytt. Blaða­maður mis­skildi orð Elliða á þann veg að ný sigl­inga­leið Smyril Line myndi hafa við­komu í Þor­láks­höfn, en svo verður ekki. Áfram munu því tvö skip hafa viku­lega við­komu í Þor­láks­höfn, en ekki þrjú.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent