Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur birt auglýsingu þess efnis að reglur um takmörkun á samkomum verði breytt 14. ágúst næstkomandi, eða á föstudag.
Helstu breytingarnar eru þær að reglur um nálægðartakmörk í framhalds- og háskólum rýmkaðar og sömuleiðis í íþróttum. „Að öðru leyti gildir áfram meginreglan um tveggja metra nálægðarmörk. Við aðstæður þar sem eðli starfsemi krefst meiri nálægðar milli einstaklinga en tveggja metra og í almenningssamgöngum þar sem ferð varir í 30 mínútur eða lengur skal nota andlitsgrímu,“ segir í tilkynningu vegna þessa.
Hjúkrunarheimilum, öðrum heilbrigðisstofnunum og sambærilegum stofnunum er gert skylt að setja reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilum og stofnunum.
Fjöldatakmörk miðast áfram við 100 manns að hámarki.
Rýmkaðar reglur fyrir skóla og íþróttir
Í framhalds- og háskólum verður heimilt að hafa einn metra á milli einstaklinga án þess að andlitsgrímur séu notaðar. Þar skuli einnig sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti minnst einu sinni á dag og áhersla lögð á einstaklingsbundnar sóttvarnir.
Þrátt fyrir meginregluna um tveggja metra nálægðartakmörkun verða snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum. Í frétt á vef stjórnarráðsins segir að aftur á móti skuli virða tveggja metra regluna í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. „Aðrir, meðal annars þjálfarar, starfsmenn og sjálfboðaliðar, skulu ávallt virða 2 metra regluna. Íþrótta- og ólympíusamband Íslands skal setja sérsamböndum sínum nánari reglur í samráði við sóttvarnalækni, meðal annars um einstaklingsbundnar sóttvarnir, sótthreinsun búnaðar, framkvæmd æfinga og keppna.“
Börn fædd árið 2005 eða síðar eru áfram undanskilin ákvæðum auglýsingarinnar sem snúa að fjöldatakmörkun og um almenna nálægðartakmörkun.
Í frétt stjórnarráðsins segir að breytingarnar snúi einungis að takmörkunum á samkomum vegna farsóttar innanlands, en gildandi auglýsing fellur úr gildi 14. ágúst. „Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra er einnig fjallað um mögulegar breytingar á fyrirkomulagi vegna skimana á landamærum. Gildandi reglugerð hvað það varðar gildir til 15. september.“