Hátt í sex hundruð fyrirtæki hafa sótt um rúma 5 milljarða í stuðningslán

Alls hafa 567 fyrirtæki sótt um 5,1 milljarð króna í stuðningslán, en umsóknir 237 þeirra hafa afgreiddar verið til þessa. Einungis eitt brúarlán hefur verið veitt, samkvæmt því sem fjármálaráðuneytið best veit.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

Alls hafa 567 fyr­ir­tæki sótt um sér­stök stuðn­ings­lán, sem rík­is­stjórnin kynnti til leiks í vor vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á efna­hags­líf­ið. Heild­ar­fjár­hæð umsókna til þessa nemur 5,1 millj­arði króna, en 237 umsóknir hafa verið afgreiddar og nemur fjár­hæð útgreiddra stuðn­ings­lána 1,9 millj­arði til þessa.

Þetta kemur fram á nýrri upp­lýs­inga­síðu rík­is­stjórn­ar­innar um þær efna­hags­að­gerðir sem gripið hefur verið til vegna veiru­far­ald­urs­ins og hvernig þær hafa verið nýttar til þessa.

Stuðn­ings­lán eru rekstr­ar­lán ætluð minni fyr­ir­tækj­um, eða þeim sem höfðu tekjur á bil­inu níu til 1.200 millj­ónir króna árið 2019. Til þess að upp­fylla skil­yrði lán­anna þurfa fyr­ir­tæki að hafa upp­lifað að minnsta kosti 40 pró­senta tekju­sam­drátt á 60 daga tíma­bili, frá 1. mars til 30. sept­em­ber miðað við sama 60 daga tíma­bil í fyrra og launa­kostn­aður þarf sömu­leiðis að hafa numið að minnsta kosti 10 pró­sentum af rekstr­ar­gjöldum árs­ins 2019. 

Auglýsing

Fleiri skil­yrði eru einnig sett á lán­tek­end­ur, en þeir mega ekki hafa greitt út arð eða óum­­­samda kaupauka, keypt eigin hluta­bréf, greitt af víkj­andi láni eða veitt nákomnum aðilum lán frá 1. mars 2020. Þá mega lán­tak­endur ekki vera í van­skilum við lána­­­stofnun sem hafa staðið lengur í 90 daga né í van­skilum með opin­ber gjöld.

Lánin geta numið allt að 10 pró­sentum af tekjum fyr­ir­tækja á árinu 2019 og eru lánin með fullri rík­is­á­byrð upp að 10 millj­ónum króna, en svo er einnig hægt að sækja um við­bót­ar­lán til bank­anna sem eru með 85 pró­sent rík­is­á­byrgð og geta þau að hámarki orðið 40 millj­ónir króna.

Ein­ungis kunn­ugt um eitt brú­ar­lán

Fram kemur á upp­lýs­inga­vef stjórn­valda að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu sé ein­ungis kunn­ugt um að eitt brú­ar­lán hafi verið veitt til þessa, en rétt eins og stuðn­ings­lánin eru það lán með rík­is­á­byrgð, sem getur numið allt að 70 pró­sentum í til­felli brú­ar­lán­anna.

Lánin geta að hámarki numið 1,2 millj­örðum króna. Eina lánið sem yfir­völdum er kunn­ugt um að hafi verið afgreitt frá því að bank­anir fóru að bjóða upp á þau var lán frá Arion banka til Icelandair Hot­els, sem einmitt fór upp í það þak.

Brú­ar­lánin voru ein helsta efna­hags­að­gerðin sem stjórn­völd kynntu til leiks vegna efna­hags­legra áhrifa far­ald­urs­ins í mars­mán­uði og var þá áætlað að þau myndu nema að hámarki 70 millj­örðum króna.

Fyr­ir­tæki virð­ast þó hafa verið treg til að sækja um þessa teg­und lána og sagði Ólafur Steph­en­sen fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda við Stöð 2 í síð­ustu viku að hann teldi skil­yrði lán­anna of flókin og fela í sér of miklar kvað­ir.

„Þar að auki eru þau bara að hluta til með rík­is­á­byrgð og okkur sýn­ist að bank­arnir séu bara ein­fald­lega ekki til­búnir að taka á sig áhættu sem getur fylgt veit­ingu brú­ar­lán­anna,“ sagði Ólafur við Stöð 2.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent