Mikil fækkun starfsfólks í einkennandi greinum ferðaþjónustu

Samkvæmt nýbirtum skammtímahagvísum ferðaþjónustu dróst virðisaukaskyld velta í geiranum saman um 59 prósent í mars-apríl í ár miðað við sama tímabil í fyrra. Samdráttur í gistinóttum hefur verið mikill í sumar samkvæmt skammtímahagvísunum.

Ferðamenn við Jökulsárlón
Auglýsing

Virð­is­auka­skatt­skyld velta ein­kenn­andi greina ferða­þjón­ustu dróst saman um 59 pró­sent í mars og apríl sam­an­borið við sömu mán­uði í fyrra sam­kvæmt nýupp­færðum skamm­tíma­hag­vísum í ferða­þjón­ustu sem Hag­stofan heldur utan um. Í mán­uð­unum tveimur nam veltan í ár 34 millj­örðum króna en 84 millj­örðum í fyrra. 



Í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar vegna útgáfu hag­vísanna segir að í mars hafi 23 þús­und verið starf­andi í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu eða um 12 pró­sent færri en á sama tíma í fyrra. „Flestir voru starf­andi við rekstur gisti­staða og veit­inga, eða tæp­lega 14 þús­und, sem er 14% lækkun borið saman við sama mánuð árið áður. Á tíma­bil­inu apríl 2019 til mars 2020 fækk­aði starf­andi í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu um 6% sam­an­borið við síð­ustu 12 mán­uði þar áður,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing


Við­búið er að fjöldi starf­andi í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu eigi eftir að lækka í hag­vísum Hag­stof­unnar á kom­andi mán­uð­um. Í nýjustu mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar sem fjallar um júlí kemur fram að um 7.700 manns hafi verið sagt upp í hóp­upp­sögnum frá því í mars, að stærstum hluta í ferða­þjón­ustu. Þá hefur atvinnu­lausum í almenna bóta­kerf­inu fjölgað hlut­falls­lega meira meðal fólks úr ferða­þjón­ustu­tengdum greinum á síð­ustu mán­uðum sam­kvæmt skýrslu Vinnu­mála­stofn­un­ar.



Mik­ill sam­dráttur gistin­átta í sumar

Í nýj­ustu útgáfu skamm­tíma­hag­vísa í ferða­þjón­ustu eru, meðal ann­ars, birtar upp­færðar tölur um gistinæt­ur. Í júní síð­ast­liðnum voru gistinætur alls rúm­lega 263 þús­und og fækk­aði þeim um 72 pró­sent frá sama mán­uði í fyrra en þá voru gistinætur alls tæp­lega 943 þús­und. Af þeim voru gistinætur á hót­elum og gisti­heim­ilum alls tæp­lega 128 þús­und í mán­uð­inum og fækkar þeim um 78 pró­sent milli ára, úr rúmum 574 þús­und­um.



Minni sam­dráttur varð í gistin­óttum á gisti­stöðum af öðrum teg­und­um. Aðrar teg­undir skráðra gisti­staða eru tjald­svæði, far­fugla­heim­ili, orlofs­hús, skálar í óbyggð­um, íbúða­gist­ing, svefn­pokag­isti­staðir og heimagisti­stað­ir. Í júní nam heild­ar­fjöldi gistin­átta á þess konar gisti­stöðum tæp­lega 136 þús­und. Sam­drátt­ur­inn í þessum flokki dróst saman um 63 pró­sent en í sama mán­uði í fyrra nam fjöldi gistin­átta í flokknum rúmum 368 þús­und­um.



Sam­kvæmt bráða­birgða­tölum Hag­stof­unn­ar, sem gefnar voru út fyrr í mán­uð­in­um, er áætlað að gistinætur á hót­elum í júlí hafi verið 269 þús­und. Í sama mán­uði í fyrra voru þær tæp­lega 508 og sam­drátt­ur­inn því áætl­aður vera 47 pró­sent á milli ára.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent