Sextíu og eitt fyrirtæki hefur óskað eftir að endurgreiða hlutabætur

Reiknað er með því með því að heildarendurgreiðslur frá fyrirtækjum vegna hlutabótaleiðarinnar muni nema 306 milljónum þegar allt verður saman talið. Kostnaður við hlutabótaleiðina hefur numið 18 milljörðum króna til þessa.

Vinnumálastofnun Mynd: Skjáskot/RÚV
Auglýsing

Alls hefur 61 fyr­ir­tæki óskað eftir að greiða til baka and­virði þeirra hluta­bóta sem starfs­menn sömu fyr­ir­tækja fengu greiddar þegar þeir voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli í vor. Stjórn­völd reikna með því að heild­ar­end­ur­greiðslur vegna hluta­bóta­leið­ar­innar muni nema 306 millj­ónum þegar allt verður saman talið.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um stöðu helstu efna­hags­að­gerða sem gripið hefur verið til vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Áður hafði komið fram hér á Kjarn­anum að fjöru­tíu og fjögur fyr­ir­tæki hafa þegar greitt bæt­urnar til baka og nema þær end­ur­greiðslur alls 210 millj­ónum króna. Stjórn­völd reikna því með tæpum 100 millj­ónum frá fyr­ir­tækj­unum 17 sem bæt­ast við.

Beinn kostn­aður íslenska rík­is­ins vegna hluta­bóta­leið­ar­innar nemur rúmum 18 millj­örðum króna til þessa, en þegar mest var í apr­íl­mán­uði voru yfir 32 þús­und manns í minnk­uðu starfs­hlut­falli. Hluta­bóta­leiðin var kynnt til sög­unnar í mars og gat í fyrstu falið í sér að ríkið greiddi allt að þrjá fjórðu launa starfs­manna sem fyr­ir­tæki þurftu að færa niður í minnkað starfs­hlut­fall tíma­bund­ið.

Auglýsing

Í minn­is­blaði ráðu­neyt­is­ins kemur fram að stefnt sé að birt­ingu á tölum um end­ur­greiðslur fyr­ir­tækja þegar end­ur­greiðsl­unum er lok­ið. Hluta­bóta­leiðin rennur út núna í lok ágúst­mán­að­ar, að öllu óbreyttu.

Fjöl­­mörg fyr­ir­tæki gáfu það út opin­ber­­lega að þau ætl­uðu sér að end­ur­greiða hluta­bæt­urn­ar, eftir að snörp gagn­rýni kom fram í opin­berri umræðu og frá stjórn­­­mála­­mönnum í lok apríl á að stöndug fyr­ir­tæki með styrkan efna­hag væru að nýta hluta­­bóta­­leið­ina, þeirra á meðal fyr­ir­tæki sem væru búin eða hefðu í hyggju að greiða hlut­höfum sínum arð á árinu.

Í lok maí birti Rík­­is­end­­ur­­skoðun skýrslu um hluta­­bóta­­leið­ina og fram­­kvæmd hennar og kom þar fram sú túlkun að ekki yrði séð af lög­­­unum um hluta­bóta­leið­ina né af lög­­­­­skýr­ing­­­ar­­­gögnum að það hafi verið ætl­­­unin að stöndug fyr­ir­tæki myndu nýta sér leið­ina.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent