Steve Bannon handtekinn fyrir aðild að fjársvikamáli

Fyrrverandi aðalráðgjafi Bandaríkjaforseta var í dag handtekinn, en hann er ákærður fyrir að hafa fóðrað eigin vasa með framlögum grunlausra borgara sem vildu styðja við að landamæramúr yrði byggður á milli Bandaríkjanna og Mexíkó.

Steve Bannon hefur verið handtekinn fyrir fjársvik.
Steve Bannon hefur verið handtekinn fyrir fjársvik.
Auglýsing

Steve Bann­on, fyrr­ver­andi ráð­gjafi og kosn­inga­stjóri Don­alds Trump Banda­ríkja­for­seta, hefur verið hand­tek­inn og ákærður fyrir fjár­svik. Banda­ríska dóms­mála­ráðu­neytið segir hann og þrjá aðra hafa stungið hluta fram­laga í söfnun sem þeir stóðu fyrir í eigin vasa. Allur ágóði söfn­un­ar­innar átti að renna beint í að byggja vegg á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexík­ó. Alls söfn­uð­ust um 25 millj­ónir dala frá hund­ruðum þús­unda stuðn­ings­manna. 

Sam­kvæmt ákæru í mál­inu fékk Bannon sjálfur meira en eina milljón dala í sinn hlut og not­aði alla­vega hluta þess fjár, hund­ruð þús­unda doll­ara, til þess að greiða fyrir sín per­sónu­legu útgjöld. Einn sam­verka­manna hans, Brian Kolfa­ge, er sagður hafa fengið meira en 350 þús­und dali í sinn hlut. 

Söfn­unin hófst undir slag­orð­inu „Við byggjum vegg­inn“ í des­em­ber árið 2018. ­Sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá sak­sókn­ara í New York var fénu safnað á þeim fölsku for­sendum að það myndi renna milli­liða­laust í það að byggja landamæra­vegg­inn. En svo var ekki.

Sam­kvæmt frétt New York Times um málið reyndu menn­irnir fjórir að fela ólög­legt pen­inga­flæði söfn­un­ar­innar með því að not­ast við góð­gerða­fé­lag undir stjórn Bann­ons og skúffu­fyr­ir­tæki eins ann­ars sak­born­ings í mál­inu.

Bannon á að koma fyrir dóm­ara í New York vegna þessa máls síðar í dag. Hvíta húsið hefur ekki viljað tjá sig um þetta, en Bannon var aðal­ráð­gjafi Trumps í upp­hafi for­seta­tíðar hans og tók einnig sæti í þjóðar­ör­ygg­is­ráði Banda­ríkj­anna, en yfir­gaf Hvíta húsið í ágúst árið 2017.

Auglýsing



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent