Hagnaður Landsvirkjunar dregst saman um 41 prósent

Landsvirkjun hefur fundið fyrir eftirspurnarminnkun á orku vegna heimsfaraldursins samkvæmt forstjóra fyrirtæksins.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Auglýsing

Lands­virkjun skil­aði 5,6 millj­arða króna hagn­aði á fyrri árs­helm­ingi, en hann er tæpum fjórum millj­örðum krónum minni en á sama tíma­bili í fyrra. For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir horfur í rekstr­ar­um­hverfi óvissar og mið­ist að miklu leyti við það hvernig tekst að fást við útbreiðslu kór­ónu­veirunn­ar. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem Lands­virkjun gaf út fyrr í dag.

Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni er afkoma fyr­ir­tæk­is­ins lituð af erf­iðu efna­hags­á­standi í heim­in­um, en heims­far­ald­ur­inn er þar sagður hafa valdið sam­drætti í eft­ir­spurn hjá helstu við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins á tíma­bil­in­u. 

Til marks um minnk­andi orku­eft­ir­spurn nefnir Hörður Arn­ar­son  for­stjóri Lands­virkj­unar að verð á Nord Pool-orku­mark­aðnum hefur lækkað um 75% á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Einnig hefur eft­ir­spurn­ar­lækkun á áli haft áhrif á minni eft­ir­spurn á orku hjá Lands­virkj­un, en með­al­ál­verð lækk­aði um 13% á tíma­bil­in­u. 

Auglýsing

Svip­aður hagn­aður og árið 2017

Hagn­aður Lands­virkj­unar á fyrstu sex mán­uðum árs­ins nemur um 5,6 millj­örðum króna og er hann tölu­vert minni en hann var á sama tíma­bili síð­ustu tvö árin. Í fyrra nam hagn­að­ur­inn um 9,4 millj­örðum króna en árið 2018 nam hann um 7,5 millj­örðum króna. Hagn­að­ur­inn í ár er þó á svip­uðum slóðum og árið 2017 og nokkru hærri en á fyrri árs­helm­ingi 2016. 

Mikil óvissa hefur verið um fram­tíð álvers Rio Tinto í Straums­vík, sem er einn af stór­kaup­endum orku hjá Lands­virkj­un. Eig­endur álvers­ins hafa sagt til skoð­unar að hætta rekstri á Íslandi vegna ósam­keppn­is­hæfs orku­verðs, en álverið sótti þó um nýtt starfs­leyfi, líkt og Kjarn­inn greindi frá í gær. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent