Háskólamenntaðir starfsmenn Stjórnarráðsins hnýta í Lilju

Stjórn Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins furðar sig á því að Lilja Alfreðsdóttir hafi farið þá leið að stefna starfsmanni stjórnarráðsins persónulega til að reyna að fá úrskurði kærunefndar jafnréttismála hnekkt.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Auglýsing

Stjórn Félags háskóla­mennt­aðra starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins (FHSS) lýsir yfir furðu sinni vegna þeirrar ákvörð­unar Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra að stefna Haf­dísi Helgu Ólafs­dóttur skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fyrir dóm til þess að freista þess að hnekkja nið­ur­stöðu kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála um að ráð­herra hafi brotið jafn­rétt­islög við skipun í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu á vef FHSS í dag, en greint var frá því að Lilja hefði stefnt Haf­dísi til að reyna að fá úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála hnekkt seint í júní. Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála hafði áður kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu í byrjun júní að Lilja hefði brotið gegn jafn­rétt­islögum er hún skip­aði Pál Magn­ús­son í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu.

Lilja sagð­ist hafa tekið þá ákvörðun að stefna Haf­dísi á grund­velli lög­fræði­á­lita sem ráðu­neyti hennar afl­aði vegna máls­ins. Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið hefur neitað að gera þau opin­ber.

Auglýsing

„Engin dæmi eru um að ráð­herra hafi höfðað mál per­sónu­lega gegn starfs­manni rík­is­ins sem hefur ekk­ert sér til saka unnið annað en að sækja um starf sem hann fékk ekki og kært þá nið­ur­stöðu eins og heim­ilt er lögum sam­kvæmt. Slíkri máls­höfðun fylgir gríð­ar­legur kostn­aður svo ekki sé talað um hversu íþyngj­andi það er fyrir félags­mann­inn að þurfa að standa í slíkum mála­ferlum næstu miss­er­in,“ segir í yfir­lýs­ingu stjórnar FHSS.

Starfs­mað­ur­inn í for­dæma­lausri stöðu gagn­vart ráð­herra

Þar er einnig sagt „óskilj­an­legt“ að ráð­herra hafi ákveðið að stefna Haf­dísi per­sónu­lega fyrir dóm, þar laga­breyt­inga­til­laga liggi nú þegar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem kemur í veg fyrir að félags­manni einum verði stefnt fyrir dóm, en sú laga­breyt­ing­ar­til­laga var lögð fram í sum­ar, eftir að málið kom upp.

„Fyrr­greind máls­höfðun getur haft það í för með sér að umsækj­endur veigri sér við að sækja lögvar­inn rétt sinn. Auk þess að setja félags­mann­inn í for­dæma­lausa stöðu gagn­vart ráð­herra er hætt við að stefnan muni fæla hæfa umsækj­endur frá því að sækja um störf hjá rík­in­u,“ segir enn fremur í yfir­lýs­ingu stjórn­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent