Niðurstöður úr síðari skimun níu ráðherra í ríkisstjórn Íslands vegna kórunuveiru reyndust neikvæðar í öllum tilfellum. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra voru einu ráðherrarnir sem þurftu ekki að fara í skimun. Þrír starfsmenn stjórnarráðsins sem fylgdu ríkisstjórninni reyndust einnig neikvæðir í báðum skimununum.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var út á tólfta tímanum í kvöld.
Greint var frá því á föstudag að ákveðið hefði verið að nær allir ráðherrar í ríkisstjórn Íslands þyrftu að fara í tvöfalda skimun og viðhafa smitgát á milli, eftir að nokkur kórónuveirusmit greindust daginn áður hjá einstaklingum sem dvöldu á Hótel Rangá.
Niðurstöður úr fyrri skimun allra ráðherranna níu, sem lágu fyrir á laugardag, höfðu reynst neikvæðar í öllum tilfellum. Ráðherrarnir fóru í seinni skimunina í dag, mánudag.
Í tilkynningu sem send var út á föstudag kom fram að ráðherrar ríkisstjórnarinnar teljist til „ytri hrings hins mögulega smithóps“ og séu því ekki hluti þess hóps sem auknar líkur eru á að hafi verið útsettur fyrir smiti.
Tveir ráðherrar sluppu
Tveir ráðherrar snæddu ekki á Hótel Rangá, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra. Þau þurftu því ekki að undirgangast ráðstafanirnar.
Ráðstafanir sóttvarnaryfirvalda í kjölfar athugunar smitrakningarteymis skipta þeim sem höfðu viðkomu á Hótel Rangá í þrjá hópa.
Fyrsti hópurinn er sá sem er líklegastur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og hóf í gær 14 daga sóttkví. Annar hópurinn var talinn minna líklegur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og fór í eina skimun og viðhefur úrvinnslusóttkví þar til niðurstaða úr skimun berst.
Þriðji hópurinn, sem ríkisstjórnin tilheyrir og er sömuleiðis minna útsettur fyrir smitum, þarf að fara í tvöfalda skimun og viðhafa smitgát á milli, sem er sú aðferð sem notuð hefur verið fyrir heilbrigðisstarfsfólk, lögreglufólk, framlínufólk í orkufyrirtækjum og lykilstarfsfólk hjá fjölmiðlum og í stjórnkerfinu.