Segir aðkomu ríkisins vera „lykilatriði“ í rekstri Icelandair og Keflavíkurflugvallar

Fyrrum ráðgjafi hjá Schiphol-flugvelli segir mikilvægt af hinu opinbera að vera tilbúið til að verja alþjóðaflugvelli og þjóðarflugfélög falli í kreppum.

Ferðamenn í Leifsstöð.
Ferðamenn í Leifsstöð.
Auglýsing

Hið opin­bera á að vera til­búið að bjarga þjóð­ar­flug­fé­lögum sínum og flug­völlum ef hætta er á gjald­þroti, en sam­starf rík­is­stjórn­ar­innar við þessa tvo aðila er lyk­il­at­riði í því að tryggja áreið­an­legar sam­göngur til lengri tíma. Þetta er mat Simon Theeuwes, fyrrum ráð­gjafa fyrir Schip­hol-flug­völl í Amster­dam. 

Theeuwes hélt erindi á mál­þingi Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands fyrr í dag um flug­sam­göngur sem grunn­inn­viði í ljósi COVID-19. Í erindi sínu fór hann yfir núver­andi stöðu flug­mála, auk grein­ingar sem gerð var á efna­hags­leg áhrif heims­far­ald­urs­ins á Schip­hol-flug­völl­inn í Amster­dam. 

Sam­kvæmt Theeuwes er Schip­hol sam­bæri­legur Kefla­vík­ur­flug­velli að því leyti að báðir flug­vell­irnir eru tengi­m­ið­stöðv­ar; Schip­hol fyrir flug til og frá Evr­ópu ann­ars veg­ar, og Kefla­vík­ur­flug­völlur fyrir flug yfir Atl­ants­hafið hins veg­ar. 

Auglýsing

Hann sagði slíka tengiflug­velli vera sér­stak­lega við­kvæma fyrir núver­andi ástandi, þar sem lengur tæki að koma flug­ferðum milli heims­álfa í fyrra horf heldur en ein­faldra milli­landa- eða inn­an­lands­flug­ferða. Mik­il­vægt væri að Ísland yrði í hóp þeirra landa sem öruggt er að ferð­ast til, en landið gæti þannig orðið að öruggum tengilið fyrir flug­ferðum milli Evr­ópu og Banda­ríkj­anna, mögu­lega þannig að far­þegar sem eru á leið yfir Atl­ants­hafið verði skimaðir á Íslandi í leið­inn­i. 

Gullni þrí­hyrn­ing­ur­inn

Enn fremur taldi Theeuwes hlut­verk rík­is­ins að verja alþjóða­flug­velli lands­ins auk þjóð­ar­flug­fé­laga þeirra (e. National flight carri­ers) falli og mögu­lega eiga hlut í þeim. Því til stuðn­ings  hann að hol­lenska rík­is­stjórnin eigi 70% í eign­ar­halds­fé­lagi Schip­hol flug­vall­ar, auk þess sem það á 14% hlut í Air­France-KLM sam­stæð­unni og önnur 5% í hol­lenska flug­fé­lag­inu KLM. Þetta sam­starf milli rík­is­stjórn­ar­inn­ar, flug­vall­ar­ins og þjóð­ar­flug­fé­lags­ins nefnir hann „gullna þrí­hyrn­ing­inn.“ 

Með slíku sam­starfi taldi Theeuwes að fyr­ir­sjá­an­leiki myndi skap­ast með rekstur flug­fé­lag­anna og flug­vall­anna, sem væru inn­viðir lands­ins. Þannig gæti hið opin­bera einnig veitt flug­fé­lög­unum aðhald og séð til þess að þau upp­fylli helstu skil­yrði hvað varðar heilsu, öryggi og sjálf­bærni. Einnig bætti hann við að slíkt sam­starf væri ekki eins­dæmi í Hollandi, finna mætti aðrar útgáfur þess ann­ars staðar í Evr­ópu, líkt og í Þýska­landi og Frakk­land­i. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent