„Nú flyt ég ykkur þær fréttir að ég hef greinst með COVID-19.“ Þannig hefst færsla Helga Hrafns Gunnarssonar, þingmanns Pírata, á Facebook í dag. Alls greindust nítján innanlandssmit í gær og voru þau öll á höfuðborgarsvæðinu. Sjö þeirra sem greindust voru í sóttkví.
Helgi Hrafn bendir á í færslu sinni að þingið hafi ekki verið starfandi síðan 4. september, og taki ekki til starfa aftur fyrr en 1. október. „Þannig að þótt COVID-19 smit sé alltaf óheppilegt, þá er tímasetningin gagnvart þingstörfum ekki sú versta upp á smitleiðir og þingstörf að gera. Að sjálfsögðu er þó farið í einu og öllu eftir tilmælum og ráðgjöf sóttvarnaryfirvalda þegar kemur að þinglokknum og starfsfólki hans, t.d. hvað varðar sóttkví. Þá er Alþingi að sjálfsögðu meðvitað um stöðuna og hefur gert viðeigandi ráðstafanir.“
Hann segir að af þeirri örstuttu reynslu sem hann hafi af þessum sjúkdómi sé honum orðið ljóst að fólk verði hratt óttaslegið og óþreyjufullt eftir upplýsingum. Hann minnir því á að þetta sé ferli, og að smitrakning taki einhvern tíma.
Heilsan ágæt enn sem komið er
„Greiningin kom í gærkvöldi og ég hef gert lítið annað en að tala við fólk, ýmist sérfræðinga eða nákomna, sinna smitrakningu og tilflutningi í einangrun,“ skrifar þingmaðurinn.
Hvað varðar heilsu hans þá er hún ágæt enn sem komið er, að hans sögn „en auðvitað verðum við bara að sjá hvað setur. Ég fæ heilræði frá þeim sem þekkja best til“.
Helgi Hrafn hvetur fólk að endingu til að fara varlega. „Það kom mér ekki minna á óvart að smitast en það kæmi þér að smitast núna. Við erum öll almannavarnir.“
Nú flyt ég ykkur þær fréttir að ég hef greinst með COVID-19. Af þeirri örstuttu reynslu sem ég hef af þessum sjúkdómi...
Posted by Helgi Hrafn Gunnarsson on Thursday, September 17, 2020
Í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis segir að þeim sem hafa verið í samskiptum við þingmanninn undanfarna daga hafi verið greint frá stöðunni eftir því sem unnt er.
„Unnið er að smitrakningu og verður gripið til frekari sóttvarnarráðstafana í húsnæði þingsins samkvæmt viðbragðsáætlun Alþingis. Smitið hefur ekki bein áhrif á þinghaldið þar eð fundum Alþingis var fyrr í mánuðinum frestað til 1. október.“