Helgi Hrafn greinist með COVID-19

Þingmaður Pírata greinir frá því á Facebook að hann sé með COVID-19 sjúkdóminn. Alþingi er meðvitað um stöðuna og hefur gert viðeigandi ráðstafanir.

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Auglýsing

„Nú flyt ég ykkur þær fréttir að ég hef greinst með COVID-19.“ Þannig hefst færsla Helga Hrafns Gunn­ars­son­ar, þing­manns Pírata, á Face­book í dag. Alls greindust nítján inn­an­lands­smit í gær og voru þau öll á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sjö þeirra sem greindust voru í sótt­kví.

Helgi Hrafn bendir á í færslu sinni að þingið hafi ekki verið starf­andi síðan 4. sept­em­ber, og taki ekki til starfa aftur fyrr en 1. októ­ber. „Þannig að þótt COVID-19 smit sé alltaf óheppi­legt, þá er tíma­setn­ingin gagn­vart þing­störfum ekki sú versta upp á smit­leiðir og þing­störf að gera. Að sjálf­sögðu er þó farið í einu og öllu eftir til­mælum og ráð­gjöf sótt­varn­ar­yf­ir­valda þegar kemur að þing­lokknum og starfs­fólki hans, t.d. hvað varðar sótt­kví. Þá er Alþingi að sjálf­sögðu með­vitað um stöð­una og hefur gert við­eig­andi ráð­staf­an­ir.“

Hann segir að af þeirri örstuttu reynslu sem hann hafi af þessum sjúk­dómi sé honum orðið ljóst að fólk verði hratt ótta­slegið og óþreyju­fullt eftir upp­lýs­ing­um. Hann minnir því á að þetta sé ferli, og að smitrakn­ing taki ein­hvern tíma.

Auglýsing

Heilsan ágæt enn sem komið er

„Grein­ingin kom í gær­kvöldi og ég hef gert lítið annað en að tala við fólk, ýmist sér­fræð­inga eða nákomna, sinna smitrakn­ingu og til­flutn­ingi í ein­angr­un,“ skrifar þing­mað­ur­inn.

Hvað varðar heilsu hans þá er hún ágæt enn sem komið er, að hans sögn „en auð­vitað verðum við bara að sjá hvað set­ur. Ég fæ heil­ræði frá þeim sem þekkja best til“.

Helgi Hrafn hvetur fólk að end­ingu til að fara var­lega. „Það kom mér ekki minna á óvart að smit­ast en það kæmi þér að smit­ast núna. Við erum öll almanna­varn­ir.“

Nú flyt ég ykkur þær fréttir að ég hef greinst með COVID-19. Af þeirri örstuttu reynslu sem ég hef af þessum sjúk­dómi...

Posted by Helgi Hrafn Gunn­ars­son on Thurs­day, Sept­em­ber 17, 2020


Í til­kynn­ingu frá skrif­stofu Alþingis segir að þeim sem hafa verið í sam­skiptum við þing­mann­inn und­an­farna daga hafi verið greint frá stöð­unni eftir því sem unnt er. 

„Unnið er að smitrakn­ingu og verður gripið til frek­ari sótt­varn­ar­ráð­staf­ana í hús­næði þings­ins sam­kvæmt við­bragðs­á­ætlun Alþing­is. Smitið hefur ekki bein áhrif á þing­haldið þar eð fundum Alþingis var fyrr í mán­uð­inum frestað til 1. októ­ber.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent