„Ég hef átt fund í dag með Katrínu Jakobsdóttur, formanni VG, og tilkynnt henni um úrsögn mína úr þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og úr hreyfingunni.
Nýlegir atburðir er varða brottvísun stjórnvalda á barnafjölskyldu sem hefur beðið eftir lausn sinna mála í 25 mánuði og viðbrögð ríkisstjórnar sem VG er í forystu fyrir í því máli, urðu til þess að ég finn endanlega að ég á ekki lengur samleið með þingflokki VG.“
Svona hefst yfirlýsing sem Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur sent á fjölmiðla.
Þar segir Rósa Björk að ákvörðunin hafi ekki verið auðveld, sér í lagi gagnvart kjósendum flokksins og félögum hennar í Suðvesturkjördæmi. Hun muni þrátt fyrir þetta halda áfram að vinna af krafti og einurð að góðum málum á Alþingi, sérstaklega er varða mannréttindi, umhverfis- og loftslagsmál, kynjajafnrétti og fleiri góðum málum.
Rósa Björk er annar þingmaður Vinstri grænna sem segir sig úr þingflokknum á þessu kjörtímabili. Í lok nóvember í fyrra sagði Andrés Ingi Jónsson sig úr honum og greindi frá því að hann myndi starfa sem óháður þingmaður út kjörtímabilið.
Andrés Ingi og Rósa Björk eru þeir tveir þingmenn sem hafa verið í þingflokki Vinstri grænna en studdu ekki stjórnarsáttmála Vinstri grænna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins.
Rósa Björk segir í yfirlýsingu sinni að mál barnafjölskyldunnar, sem telur foreldra og fjögur börn frá Egyptalandi, hafi verið þess eðlis að það væri ekki hægt annað en að taka afstöðu með mannúðinni, með réttindum barna á flótta sem hér hafi fest rætur og myndað tengsl. „Og taka afstöðu gegn því að íslensk yfirvöld vísi á brott börnum og barnafjölskyldum. Á þeim þremur árum sem VG hefur setið í ríkisstjórn hefur lítið sem ekkert miðað í átt að móta hér nýja stefnu í málefnum innflytjenda og hælisleitenda eða að fylgja mannúðarsjónarmiðum í málaflokknum, sem er þó það sem ríkisstjórnin lofaði. Það er mjög miður.“
Hún segir að sem varaformaður flóttamannanefndar Evrópuráðsþingsins hafi hún fengist mikið við málefni fólks á flótta, og sérstaklega mála sem varði börn á flótta, sem hún hafi unnið ötullega að. „Í því ljósi finnst mér þessi stefnubreyting og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar sérstaklega dapurleg og bera vitni um afstöðu sem er langt frá því sem afstaða VG í þessum málaflokki hefur verið hingað til og langt frá því sem við bárum fram bæði í stjórnarandstöðu og fyrir kosningar.“