Félags Þorsteins Más ekki lengur á meðal stærstu eigenda Sýnar

Í lok júlí var greint frá því að félag í eigu forstjóra Samherja væri á meðal stærstu eigenda fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækisins Sýnar. Samkvæmt nýbirtum hluthafalista hefur það breyst.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Auglýsing

Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn, í meiri­hluta­eigu Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra Sam­herja, er ekki lengur á meðal 20 stærsta eig­enda fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Sýn­ar. 

Þegar listi yfir 20 stærstu hlut­hafa þess í lok júlí var birtur kom fram að félag Þor­steins ætti 0,67 pró­sent hlut í Sýn. Félagið hafði ekki verið á lista yfir stærstu hlut­hafa mán­uði áður og ljóst að það hafði bætt við sig hluta­bréfum í júlí. 

Sam­kvæmt nýjum lista yfir stærstu hlut­hafa Sýn­ar, sem birtur er á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins og sýnir eign­ar­hald þess 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, þá er Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn ekki lengur á meðal 20 stærstu hlut­hafa, en ein­ungis er birtur listi yfir þá. Sá eig­andi sem er í 20. sæti yfir stærstu eig­endur Sýnar á 0,57 pró­sent hlut og því liggur fyrir að félag Þor­steins Más hefur selt sig niður í fyr­ir­tæk­inu á síð­ustu vik­um. 

Virði þess hlutar sem sem Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn átti í Sýn í lok júlí var tæp­lega 48 millj­ónir króna miðað við gengi bréfa á þeim tíma. Félagið hélt utan um eign­ar­hlut Þor­steins Más í Sam­herja sem hann fram­seldi að nán­ast öllu leyti til barna sinna í sum­ar, en eigið fé þeirra tveggja félaga sem mynda Sam­herj­a­sam­stæð­una, Sam­herja hf. og Sam­herja Hold­ing, var 111 millj­­arða króna í lok árs 2018. Félögin hafa ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2019 þrátt fyrir að frestur til þess sé lið­inn, en þeim á að skila til árs­reikn­inga­skrár fyrir 31. ágúst. 

Bréf í Sýn hafa hækkað

Sýn tap­aði 410 millj­­ónum króna á fyrri hluta árs­ins 2020. Félagið tap­aði 1,7 millj­­arði króna á árinu 2019 og hefur því tapað yfir tveimur millj­­örðum króna á einu og hálfu ári.

Auglýsing
Inni í þeirri tölu er ein­skipt­is­hagn­aður vegna sölu á fær­eyska félag­inu Hey upp á 817 millj­­ónir króna í byrjun árs í fyrra. Án hans hefði tapið auk­ist um þá tölu. 

Tapið á öðrum árs­fjórð­ungi, sem hófst í byrjun apríl og lauk í lok júní, nam 60 millj­­ónum króna en það er umtals­vert minna tap en á sama árs­fjórð­ungi í fyrra þegar tapið var 215 millj­­ónir króna.

Tekjur Sýnar uxu milli ára. Þær voru 10,3 millj­­arðar króna á fyrri hluta árs­ins en höfðu verið rétt um tíu millj­­arðar króna á sama tíma­bili 2019. Tekju­hækk­­unin er að öllu leyti til­­komin vegna þess að tekjur End­or, upp­­­lýs­inga­­­fyr­ir­tækis sem stýrir ofur­­­tölvum sem Sýn keypti í fyrra, komu inn í sam­­stæð­u­­reikn­ing félags­­ins í ár. Tekjur vegna hýs­ing­­ar- og rekstr­­ar­­lausna voru því 1.315 millj­­ónir króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2020 en þær voru engar í fyrra. 

Bréf í Sýn hafa hækkað umtals­vert frá því að hálfs­árs­upp­gjör Sýnar var birt, sem gefur til kynna að fjár­festar hafi aukna trú á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Nú er mark­aðsvirði Sýnar rúm­lega níu millj­arðar króna. Innan lið­ins árs hefur virði bréfa í Sýn þó lækkað um tæp 13 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent