Bjartsýn spá sóttvarnalæknis rættist ekki

Kórónuveirusmitum hefur fjölgað mikið undanfarna daga og var boðað óvænt til blaðamannafundar almannavarna í dag vegna þessa. Sóttvarnalæknir segir að það muni ekki skila neinu að leita að sökudólgi.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Auglýsing

Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir sagði á blaða­manna­fundi Almanna­varna í dag að hann hefði verið bjart­sýnn í gær að verið væri að ná utan um far­ald­ur­inn. „Sú bjart­sýna spá mín hefur ekki ræst.“ Hann skoðar nú að leggja það til við heil­brigð­is­ráð­herra að herða tak­mark­an­ir. 

Fram kom í fréttum í morgun að sjö­­tíu og fimm ein­stak­lingar hefðu greinst með kór­ón­u­veirusmit inn­­­an­lands í gær og var um helm­ingur í sótt­­­kví við grein­ingu. Und­an­farna fjóra daga hafa því 128 smit greinst inn­­­an­lands.

Sótt­varna­læknir sagði á fund­inum að þessi vöxtur væri þó ekki óvæntur þar sem talað hefði verið um að slíkar bylgjur myndu koma upp af og til. „Það hefur ber­lega komið í ljós að það þarf lítið til til þess að veiran breiði úr sér – og breið­ist milli ein­stak­linga.“

Auglýsing

Að leita að söku­dólgi mun ekki skila neinu

Ástæður fyrir þess­ari bylgju, eru að hans mati, vafa­laust marg­ar. „Í grunn­inn er hægt að segja að allar þær til­slak­anir sem við höfum verið að grípa til, bæði til­slak­anir í sótt­vörnum hjá okkur sem ein­stak­lingum og opin­berar til­slak­anir sem hafa verið í gangi hafa vafa­laust leitt til þess að veiran á hægar um vik til að dreifa sér því í grunn­inn vitum við hvernig þessi veira berst á milli manna.“

Þórólfur telur rétt að vara við því núna að fara að leita að söku­dólgi – þetta sé það sem aðrar þjóðir eru einnig að ganga í gegn­um. Jafn­vel sé von á annarri bylgju eftir að nið­ur­lögum þess­arar hefur verið ráð­ið. 

„Það að fara að leita að ein­hverjum söku­dólgi mun ekki skila okkur neinu í þeirri bar­áttu sem við þurfum að heyja núna á næst­unn­i. 

Við þurfum að minna okkur á það að við höfum staðið í þessu saman til þessa og það hefur skilað okkur góðum árangri, til dæmis fyrr í vet­ur. Það mun skila okkur góðum árangri áfram,“ sagði sótt­varna­lækn­ir. 

Jákvætt að eng­inn sé alvar­lega veikur

Hið jákvæða á þessum tíma­punkti, að hans sögn, er að eng­inn sé alvar­lega veikur á sjúkra­húsi en hann minnti á að þeir sem væru að veikj­ast núna væru yngra fólk sem veik­ist að jafn­aði ekki eins og eldri ein­stak­lingar eða ein­stak­lingar með und­ir­liggj­andi vanda­mál. 

„Það er alveg eins lík­legt að mikil útbreiðsla meðal yngra fólks geti síðan á end­anum smit­ast yfir í eldri ein­stak­linga sem gætu þá veikst alvar­lega,“ sagði hann. 

Þá minnti hann á í þessu sam­hengi að alvar­leg veik­indi kæmu yfir­leitt ekki fram fyrr en um viku eftir byrjun ein­kenna, þannig að „við gætum eftir að sjá alvar­leg ein­kenni á næstu dögum eða næstu vik­um“. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent