Smitum fækkar á milli daga – 38 greindust með veiruna í gær

Und­an­farna fimm daga hafa 166 smit greinst inn­an­lands. Mun færri sýni voru tekin í gær en daginn áður.

Landspítali COVID kórónuveiran
Auglýsing

Alls greindust 38 með kór­ón­u­veirusmit inn­­­an­lands í gær. Það er umtals­vert færri en greindust á föstu­dag, þegar 75 smit voru greind. Und­an­farna fimm daga hafa 166 smit greinst inn­­­an­lands. Þetta kemur fram á vefnum covid.­­­is. 

Alls voru rúm­­­lega 2.395 sýni tekin í land­inu í gær, sem er mun færri en í fyrra­dag þegar þau voru 3.600.  

55 pró­­sent þeirra sem voru greindir sýktir í gær voru í sótt­­­kví við grein­ingu. Almanna­varnir hafa boðað til blaða­­manna­fundar vegna ástands­ins klukkan 14 í dag.

Auglýsing
Þórólfur Guðn­a­­son sótt­­varna­læknir sagði á blaða­­manna­fundi Almanna­varna í gær að hann hefði verið bjart­­sýnn að verið væri að ná utan um far­ald­­ur­inn. „Sú bjart­­sýna spá mín hefur ekki ræst.“ Hann skoðar nú að leggja það til við heil­brigð­is­ráð­herra að herða tak­­mark­an­­ir. 

Alls eru 1.290 ein­stak­l­ingar í sótt­­­­­kví og 1.806 til við­­­bótar í skimun­­­ar­­­sótt­­­kví eftir að hafa komið hingað til lands und­an­farna daga. 215 ein­stak­l­ingur er nú með virkt smit inn­­­an­lands og t­veir eru nú á sjúkra­­­húsi vegna COVID-19.

Smit á skemmti­stöðum

Svan­­dís Svav­­­ar­s­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra féllst á til­­­lögu sótt­­­varna­læknis í fyrra­dag um að loka skemmti­­­stöðum og krám á höf­uð­­­borg­­­ar­­­svæð­inu, tíma­bundið í fjóra daga frá 18. til 21. sept­­­em­ber. Þetta var gert til að sporna við útbreiðslu COVID-19.

Víðir Reyn­is­­son yfir­­lög­­reglu­­þjónn sagði á upp­­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær að eig­endur ein­hverra skemmti­­staða, þar sem smit­aðir ein­stak­l­ingar hefðu verið á ferð, hefðu ein­­dregið óskað eftir því að staðir þeirra yrðu ekki nafn­­greindir opin­ber­­lega.Nýgengni smita síðustu 14 daga.

Víðir sagði enn­fremur að yfir­­völd teldu sig ekki hafa heim­ild til þess að greina frá nöfnum stað­anna, en hvatti eig­endur skemmti­­stað­anna sem um ræðir til þess að sýna sam­­fé­lags­­lega ábyrgð og láta við­­skipta­vini sína vita. Hann sagði að hann teldi að eng­inn myndi tapa á því.

Í kjöl­farið birti veit­inga­­stað­­ur­inn Brewdog til­kynn­ingu á Face­book þar sem við­skipta­vinir hans sem heim­­sóttu stað­inn föst­u­dag­inn 11. sept­­em­ber eða laug­­ar­dag­inn 12. sept­­em­ber, til þess að fara í skimun, en í ljós hefur komið að einn starfs­­maður sem var að vinna þá helg­ina hefur greinst með COVID-19.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent